Á næturnar milli hjólaleiðanna er gist í tjaldbúðum eða fengin hugguleg innigisting, fyrst í Húsafelli og síðan á Hveravöllum. Það er engin tilviljun að þessir staðir eru næturstaðir keppenda því báðir bjóða upp á yndislega náttúrufegurð og góða aðstöðu með baðstað og veitingastöðum þar sem keppendur njóta kvöldverðar og morgunverðar. Hægt er að fá alla þjónustu innifalda í skráningu eða taka klapplið með sér sem sér um næturstæði, fæði og hvatningu.
En er þetta hjólaævintýri fyrir alla? „Í WOW Glacier 360 er krefjandi hjólaleið. Til þess að njóta ævintýrisins þarf maður að vera vanur því að sitja á hjólinu og treysta sér til að vera á ferðinni í 4-6 klst.
Við mælum því alltaf með einhverjum undirbúningi sé fólk ekki vant þessum ferðamáta. Hins vegar er vel séð um fólk og hægt er að stoppa á leiðinni til að grípa sér drykk og snarl,“ segir Björk Kristjánsdóttir hjá Made in Mountains sem stofnaði og heldur keppnina.
Það eru enn nokkrir mánuðir til stefnu og um að gera að fara að æfa sig sem fyrst svo maður njóti þessa ævintýris sem best þegar það brestur á í ágúst.
En hvernig hjól er best að nota? „Við höfum séð alls konar fáka á ferðinni í þessari keppni en ef við ættum að mæla með einni gerð myndum við segja að „short travel full suspension“ hjól væri vinningshafinn. Leiðin er sannkallað bland í poka, malarvegir, þröngar brautir, grýttir slóðar og fleira skemmtilegt. Hver dagur býður upp á eitthvað nýtt þannig að það er erfitt að segja að það sé eitt rétt hjól þar sem flestir myndu líklega velja sér nýtt fyrir hvern hluta af leiðinni. Hins vegar er bara leyfilegt að vera með eitt stell,“ segir Björk.
Eins og allir vita er íslensk veðrátta óútreiknanleg, líka á sumrin, en Björk segir kjörorðið í þessum efnum sé að vona það besta en búa sig undir það versta: „Það er auðvitað algjör draumur að hjóla í hlýju, björtu og fallegu veðri en við lítum einnig á það sem ákveðið ævintýri að takast á við óblíða náttúru landsins. Keppnishaldarar munu tryggja öryggi keppenda og gæta þess að brautin sé örugg áður en lagt er af stað, tilbúin með plan B gerist þess þörf.“
Upplýsingar um hjólalreið er að finna á https://www.glacier360.is/details-itinerary/ og aðrar frekari upplýsingar, sem og skráning, eru á https://www.glacier360.is/