fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
FókusKynning

FANG-garðbekkir: Falleg hönnun úr íslenskum skógarvið með atvinnuþátttöku fanga

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 16. apríl 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þegar samstarfið við Litla-Hraun hófst var nokkur verkefnaskortur á verkstæðinu þar og var þessu tekið fagnandi. Þáverandi fangelsisstjóri, Margrét Frímannsdóttir, var mjög jákvæð gagnvart þessu og fangarnir hafa sinnt þessu af ástríðu; þeir leggja mikið upp úr því að gera þetta vel og að bekkirnir endurspegli fagmennsku og gott handbragð,“ segir Dagný Bjarnadóttir, landslagsarkitekt hjá DLD, en garðbekkir hennar undir vörumerkinu FANG eru stórmerk hönnun sem annars vegar hefur umhverfisverndarsjónarmið og hins vegar samfélagsleg markmið um atvinnuþátttöku fanga að leiðarljósi.

„Hönnunin hefur að markmiði að nýta betur skógarefnivið sem til fellur og hins vegar að skapa atvinnu og verkþekkingu í fangelsum. Þetta nafn, FANG, er skammstöfun á  Framleiðsla afurða úr nytjaskógi í grennd. Það vísar líka í framleiðslustaðinn fangelsi, en ekki síður til faðmlags, að taka eitthvað í fangið og umfaðma það, sem maður óskar að sé gert við fangana og umhverfið,“ segir Dagný.

Nokkuð annarri nálgun er beitt við hönnun þessara garðbekkja en vanalega tíðkast við gerð sambærilegra skógarbekkja: „Margir kannast til dæmis við bekki sem eru hálfur trjábolur og þess háttar. Í hönnun Fang-bekkjanna er leitast við að vinna út frá efniviðnum og framleiðslumöguleikum verkstæðanna á Litla-Hrauni, þar sem einfaldleiki og auðlært framleiðsluferli skiptir máli. Í hönnuninni er dregið fram náttúrulegt form efnisins með því að tefla því á móti öguðum og stílhreinum formum, með því móti næst spenna og dýnamík þar sem efniviðurinn fær notið sín til fulls. Við reynum að nýta efnið eins vel og hægt er, ef ég fæ nógu góðan trjábol get ég sagað hann í tvennt og notað báða helmingana í efnivið. Ég læt tréð halda forminu að neðanverðu, sem gerir hvern bekk einstakan, þannig verða engir tveir bekkir nákvæmlega eins. Þeir standa á stálfótum sem eru pólýhúðaðir og hægt er að bolta þá niður. Bekkurinn er fljótur að þorna þar sem vel loftar á milli borðanna. Í dag eru tvenns konar bekkir í framleiðslu, Drumbur, sem er beinn bekkur, og Sveifla, sem er í boga.“

Segja má að gerð bekkjanna sé samvinnuverkefni Dagnýjar, skógræktarfélaganna á Suðurlandi og vistmanna á Litla-Hrauni: „Skógræktarfélögin höggva viðinn og saga til efnið. Lokastig framleiðslunnar á sér stað á Litla-Hrauni, þar eru bekkirnir settir saman og fullkláraðir. Aðalhandverkið fer fram þar en hitt er aðallega skógarvinnsla. Fæturnir eru þó oftast aðkeypt vinna.“

Helstu kaupendur að bekkjunum hafa verið sveitarfélög en almenningur kaupir einnig þessa bekki því þeir fara vel í garðinum eða við sumarbústaðinn. „Svo spillir ekki fyrir að engir tveir bekkir eru eins því form trésins ræður útlitinu, því er hver og einn bekkur sérstakt handverk,“ segir Dagný.

Fang-bekkina má nú sjá víða. Nýlega voru þeir notaðir á útsýnisstað við Goðafoss, þá má finna í Vatnsmýrinni, í Hellisgerði í Hafnarfirði, á leiksvæðum á Klambratúni og við Árbæjarskóla, svo eitthvað sé nefnt. Fljótlega verða settir upp bogabekkir af þessu tagi við veitingastað í endurgerðum bragga í Nauthólsvík. Fang-bekkirnir falla vel að umhverfinu hvort sem það er borgarlandslag eða við náttúruperlur landsins.

Auk bekkjanna fæst DLD teiknistofa við margs konar verkefni á sviði landslagsarkitektúrs, frá skipulagsgerð til ýmiss konar hönnunar, og hefur stofan hlotið margs konar verðlaun á sínu sviði. Nánar má lesa um bekkina og verksvið DLD og fleira um framsækna hönnun Dagnýjar, á vefsíðunni dld.is. Einnig er fésbókarsíðan fangutihusgogn með myndir af bekkjunum við ýmsar aðstæður. Bekkirnir eru framleiddir eftir pöntun og er hægt að hafa samband við Dagnýju í gegnum samskiptaleið á vefsíðunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum