fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
FókusKynning

Hvað ætlar þú að gera á laugardaginn? Glæsileg brúðkaupskynning í Kúnígúnd

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 13. apríl 2018 08:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Laugardaginn 14. apríl verður haldin brúðkaupskynning í Kúnígúnd Kringlunni á milli 13 og 17. Verslunin í Kringlunni var flutt í lok síðasta árs og er nú á 1. hæð, Stjörnutorgsmegin í Kringlunni. Verslunin í Kringlunni er sú stærsta af verslunum Kúnígúndar og afar glæsileg. Þar má finna allt vöruúrval Kúnígúndar.

Þetta er í annað sinn sem brúðkaupskynning er haldin í Kúnígúnd og reyndist tilvonandi brúðhjónum afar vel þegar hún var haldin í fyrra. Nú verður kynningin með stærra sniði en áður og á nýjum stað.

Á brúðkaupskynningu verður boðið upp á faglega ráðgjöf á ýmsum sviðum er varða brúðkaupsundirbúning.

Glæsilegt happdrætti verður fyrir tilvonandi brúðhjón sem stofna gjafalista hjá Kúnígúnd og verða þrjú pör dregin út.

Í vinning eru KitchenAid Artisan-hrærivél, hnífaparasett fyrir 12 frá Georg Jensen og hágæða sængurföt fyrir tvo úr egypskri bómull frá Georg Jensen Damask. Mjög veglegir og vandaðir vinningar.

Í Kúnígúnd mæta góðir gestir. Kökusérfræðingur frá 17 sortum verður á staðnum og býður upp á smakk auk þess sem glæsilega skreyttar brúðartertur frá þeim verða til sýnis. Þannig geta tilvonandi brúðhjón kynnt sér hvað 17 sortir hafa upp á að bjóða en þar á bæ eru gerðar hágæða brúðartertur úr allra besta fáanlega hráefni.

Mekka Wines & Spirits mun einnig vera með kynningu og veita ráðgjöf um rétta vínið fyrir veisluna.

Jafnframt verður Linda Benediktsdóttir, fagurkeri og lífsstílsbloggari, á staðnum en hún mun dekka borð og gefa fólki góðar hugmyndir um hvernig skuli setja upp veisluborð fyrir ólík tilefni. Lindu ættu flestir að þekkja sem fylgjast með samfélagsmiðlum en hún hefur vakið athygli fyrir einstakar ljósmyndir og girnilegar uppskriftir á síðunni lindaben.is.

Starfsfólk Kúnígúndar verður til þjónustu reiðubúið við að kynna allt það helsta sem fæst í versluninni og hjálpa tilvonandi brúðhjónum við að stofna gjafalista. Gjafalistar eru frábær aðstoð fyrir brúðkaupsgesti þegar kemur að gjafavali ekki síður en fyrir brúðhjónin. Hjá Kúnígúnd fæst vönduð gjafavara í öllum verðflokkum svo allir ættu að finna eitthvað á listann við hæfi.

Erlendis tíðkast gjarnan að láta vita í boðskortum hvar brúðhjónin hafa skráð sig á gjafalista en minna hefur verið um það hérlendis. Þetta er þó afar góður siður og getur komið í veg fyrir að brúðhjón fái sömu gjöfina frá mismunandi aðilum eða brúðhjón fái t.a.m. hluti sem eru ekki í stíl við þeirra heimili. Kúnígúnd mælir með því að fólk velji út frá sem fjölbreyttustu verðbili á gjafalistana því oft vilja margir vinir eða stórar fjölskyldur leggja saman og kaupa eina veglega gjöf en það er einnig gott að hafa minni hluti á listanum sem vantar á heimilið.

Það er auðvelt að setja upp gjafalista á kunigund.is en starfsfólkið í verslunum Kúnígúndar getur aðstoðað við uppsetningu sé þess óskað. Einnig er þar starfsfólk með margra ára reynslu sem getur aðstoðað við valið og veitt ráðgjöf þegar velja á réttu sængurfötin eða matarstellið svo dæmi séu tekin. Það getur reynst mörgum erfitt að velja á milli, enda er úrvalið gífurlegt. Þá er oft stór ákvörðun að byrja að safna í matarstell og þá getur verið gott að tala við fagfólkið sem finnur út með brúðhjónunum hvað hentar þeim best.

Á www.kunigund.is má finna leiðbeiningar og flotta netverslun með miklu úrvali.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum