Á Akranesi býr landsins stærsti aðdáandi Disney teiknimyndarinnar The Lion King, þó víðar væri leitað. Sunna Rós Þorsteinsdóttir er 35 ára og mikil áhugamanneskja um kvikmyndir. Hún hefur verið lengi heilluð af Konungi ljónanna og er með húðflúr af aðalpersónunni Simba.
Sunna Rós gaf sig fram eftir að Bíó Paradís auglýsti eftir stærstu Lion King-aðdáendum Íslands, í tilefni af því að myndin verður sýnd á Alþjóðlegri Barnakvikmyndahátíð á laugardaginn 14. apríl.
„Myndin er ein af þremur uppáhaldsmyndunum mínum. Það er bara ekkert hægt að fá ógeð af þessari kvikmynd og það hleypur á þriggja stafa tölu hvað ég hef séð hana oft!“ segir Sunna Rós, sem sá myndina fyrst í bíó tólf ára gömul og segir myndbandsspóluna hafa verið nauðsynlegan og vægast sagt vinsælan hlut á heimilinu.
Sunna segir að myndin hafi sérstaklega oft verið sett í gang þegar tveggja ára frænka hennar heimtaði að fá að horfa á myndina dag eftir dag á meðan hún var í pössun. „Við enduðum á því að horfa á hana nánast daglega í heilt ár á einum tímapunkti,” bætir Sunna við. “Það þykir því við hæfi að fá mér tattúið af teikningunni sem apinn Rafiki krotaði af Simba í tréð.”
Uppáhalds lag Sunnu í myndinni segir hún tvímælalaust vera Be Prepared, einsöngurinn hjá hinum illræmda Skara, sem er sungið að mestu af breska leikaranum Jeremy Irons í upprunalegu útgáfu myndarinnar.
Aðspurð um hvora talsetninguna hún kunni betur að meta segist hún ekki einu sinni hafa klárað að horfa á þá íslensku út til enda, enda skýr ástæða þar á bakvið: „Mig langar helst til að æla yfir íslensku útgáfunni”.