fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

InfoMentor: Einfalt og öflugt kerfi sem heldur utan um námsmat nemenda

Kynning
Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 31. mars 2018 18:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndaapp er ný og spennandi viðbót sem mun gera skólastarf sýnilegra.

„InfoMentor er hugbúnaðarfyrirtæki sem býður upp á kerfi fyrir leik- og grunnskóla. Þetta er íslenskt hugverk og fyrirtækið er með höfuðstöðvar á Íslandi, en Mentor er með starfsstöðvar í fimm löndum“ segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir hjá InfoMentor, en hún er einn þriggja ráðgjafa sem þjónusta íslensku skólana.

„InfoMentor kerfið er hannað til að aðstoða kennara við alla sína vinnu og þá sérstaklega við að halda utan um hæfninám samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla. Með hæfninámi eru hæfniviðmið veigamikill þáttur en þau eru lýsing á hæfni sem nemendur eiga að stefna að. InfoMentor auðveldar skólum að innleiða hæfninám og halda utan um námsmat sem byggir á hæfni nemenda. Þannig er kerfið tæki kennara til að halda vel utan um hvern einstakling, halda utan um námsmat og í raun allt sem viðkemur kennslu og skólastarfi.

Fyrir skólann er kerfið frábær lausn til að halda utan um allt á einum stað, allar upplýsingar um nemendur skólans, bæði hvað varðar ástundun, upplýsingar til foreldra og alla vinnu innan skólans. Allir nemendur og foreldrar þeirra hafa aðgang að kerfinu og geta fylgst vel með stöðu nemandans jafnt og þétt yfir skólaárið, geta séð þau viðfangsefni og verkefni sem nemandinn er að vinna í, fengið fréttir frá skólanum, fylgst með viðburðum, séð hvað er framundan í skólastarfinu og fleira“ segir Gunnur Líf. „Kerfið býður upp á marga möguleika fyrir kennara og er það hver skóli sem ákveður hvaða lausnir hann nýtir. Kennarinn getur tengt áætlanir, verkefni og námsefni og sett fram á skýran hátt fyrir nemendur. Samhliða þessu gefst kennurum tækifæri til að efla samstarf sitt því þeir geta miðlað efni, afritað og endurnýtt innan síns skóla og jafnvel sveitarfélags.“

Hjarta kerfisins er að halda vel utan um nám og námsmat nemenda

„Kerfið er hugsað til að auðvelda stjórnendum og kennurum, við viljum að vinna kennarans við skráningu á námsmati verði einfaldari, námsmatið verði áreiðanlegra og að nemendur fá skýrari upplýsingar um eigin árangur og hvar þeir geta bætt sig. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir nemendur og foreldra þeirra að geta séð með skýrum hætti hver staða nemandans er og að viðmiðin séu alltaf skýr, jafnt og þétt yfir skólaárið.

Mentor var stofnað árið 1990 þá sem Menn og mýs. Það var svo árið 2000 sem fyrirtækinu var skipt upp og varð Mentor. Í dag heitir bæði fyrirtækið og kerfið okkar InfoMentor sem er það vörumerki sem við notum á öllum mörkuðum. Frá upphafi hefur fyrirtækið unnið með skólum og er því komið með góða reynslu af rekstri og þróun náms- og upplýsingakerfa. Mikil þróun hefur orðið á síðustu árum og hefur kerfið fylgt nýrri hugsun og nýjum áherslum í skólastarfi,“ segir Gunnur Líf.

„Við viljum leggja okkar af mörkum og hjálpa skólum að byggja upp öflugt skólakerfi þar sem stuðlað er að alhliða þroska, velferð og menntun hvers og nemanda. Okkar kjarnahugmyndafræði er að allir nemendur eigi að fá tækifæri til að hámarka sína hæfni. Með það í huga bjóðum við skólum þekkingu, þjónustu og lausnir í takt við nútíma tækni, nútíma kennsluhætti og skólaþróun.“

Socratess – sjálfsmat fyrir skóla

Nú á nýju ári settum við í loftið Socratess sem er sjálfsmat fyrir skóla, www.socratesss.is. Socratess er ókeypis verkfæri sem auðveldar skólum að meta hvar þeir eru staddir á vegferðinni við að innleiða hæfninám í sínum skóla. Í Socratess er sjónum beint að skipulagningu námskrár, kennslu, samskiptum og samvinnu, námsmati og greiningu á námsmati. Skólastjórnendur, kennarar eða jafnvel kennarateymi svara spurningum sem settar eru fram á vefsíðunni og fá góðar og haldbærar niðurstöður sem geta varpað ljósi á þætti sem vel eru gerðir í skólanum og um leið fengið vísbendingar um hvað má bæta í skólastarfinu.

Að þróa skóla frá hefðbundinni kennslu og námsmati, með áherslu á próf og einkunnir í tölustöfum, yfir í nám þar sem stefnt er að ákveðinni hæfni, er krefjandi en um leið spennandi verkefni. Socratess matskerfið byggir á rannsóknum og kenningum viðurkenndra fræðimanna og hægt er að lesa sér nánar til um það á vefnum sjálfum. Socratess er einnig gefinn út í Svíþjóð og Bretlandi. Spurningarnar og faglegt efni byggja á sama módeli en efnið er lagað að námskrá hvers lands og stöðu

Það er von okkar að skólar geti nýtt sér Socratess til að fá vísbendingar um hvar þeir eru staddir og að þeir geti nýtt sér niðurstöður sem umræðugrundvöll til frekari þróunar. Socratess er ekki hugsaður sem endanlegur sannleikur heldur til að fá fólk til að hugsa um stöðu náms og kennslu í sínum skóla.“

Myndaappið er nýr og spennandi valmöguleiki

„Núna í þessari viku vorum við að setja í loftið nýtt app sem er mjög spennandi valmöguleiki fyrir kennara, tækifæri til að gera skólastarf sýnilegra fyrir foreldra,“ segir Gunnur Líf. „Þetta er mynda- og myndbandaapp, sem heitir InfoMentor media, eða Myndaappið. Kennarar geta náð í appið á tæki skólans og þannig er hægt að taka myndir og myndbönd af nemanda eða verkum nemenda og setja inn í námsmöppu hans og – eða sem viðhengi við viðkomandi námsmat hjá hverjum nemanda.“

Infomentor er í flestum grunnskólum landsins

Infomentor er notað í flestum grunnskólum á landinu, eða um 90%, og nokkrum leikskólum.

„Hver nemandi er með sinn aðgang að kerfinu, þannig að nemendur geta sjálfir séð „Hvernig stend ég?,“ og við heyrum það frá nemendum, þeir kalla eftir að fá að vita hvar þeir standa og hvaða viðmið þeir eru að vinna með og þarna hafa þeir tækifæri til þess jafnt og þétt yfir skólaárið.

Infomentor er hugsað sem vinnusparnaður fyrir kennara, kerfi sem er einfalt að vinna við og sem mun aðstoða þá til framtíðar, kennsluáætlanir og annað eru geymdar í kerfinu, þannig safnast saman góður banki hjá skólanum, sem hægt er að nýta áfram.

Nemendur, foreldrar og kennarar eru með góðar upplýsingar í kerfinu, þannig að allar almennar upplýsingar eru sýnilegar og það ætti ekkert að koma á óvart,“ segir Gunnur Líf.

Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Infomentor: infomentor.is, Facebook: infomentor.is  og á YouTube rásinni: InfoMentorIsland.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum