Hægt er að nálgast ógrynni af góðu sjónvarpsefni á Netflix og munu vafalaust margir leggjast í sófann um páskana og kveikja á sjónvarpinu. Á Netflix er mikið af nýlegu og góðu efni og er markmið hér að gefa fólki hugmynd um hvað það ætti að horfa á. Athugið að þetta eru allt þættir sem eru aðgengilegir á íslenska Netflix.
Áhugaverðir heimildarþættir í sex hlutum um mjög svo vafasaman indverskan gúrú, Rajneesh, sem kom sér fyrir í Oregon-ríki á níunda áratug liðinnar aldar. Rajneesh byggði einskonar útópíu fyrir sig og fylgismenn sína, íbúum og yfirvöldum í nágrenninu til mikillar armæðu. Deilurnar undu upp á sig og enduðu í raun með algjörum hörmungum undir það síðasta. Þættirnir hafa hlotið mjög góða dóma hjá gagnrýnendum.
Fyrri þáttaröð þessara hressilegu gamanþátta vöktu mikla athygli en á dögunum kom önnur þáttaröðin inn á Netflix. Drew Barrymore og Timothy Olyphant leika aðalhlutverkin í þessum blóðugu gamanþáttum sem segja frá hjónum, Sheilu og Joel, sem starfa sem fasteignasalar. Þegar Sheila deyr er óhætt að segja að líf hjónanna breytist til hins verra, eða betra, eftir því hvernig á það er litið.
Hér er um að ræða heimildarþætti í fjórum hlutum sem fjalla um samstarf Jimmi Iovine og rapparans og frumkvöðulsins Dr. Dre. Jimmy var meðstofnandi Interscope Records og stofnaði svo Beats Electronics með Dr. Dre árið 2006. Rætt er við marga nafntogaða einstaklinga í rappsenunni í þáttunum, til að mynda Snoop Dogg, Kendrick Lamar, Sean Combs og fleiri til.
Mjög svo áhugaverðir þættir sem byggðir eru á sannsögulegum atburðum. Á árunum 1978 til 1995 skelfdi sprengjuvargur íbúa Bandaríkjanna. Maðurinn sem um ræðir heitir Ted Kaczynski og gekk undir nafninu Unabomber í bandarískum fjölmiðlum á sínum tíma. Ted, sem var sérvitur stærðfræðingur, smíðaði heimatilbúnar bréfasprengjur sem hann sendi meðal annars til fólks í bandarísku háskólasamfélagi. Þrátt fyrir mjög umfangsmikla rannsókn FBI gekk illa að finna sökudólginn. Þættirnir, sem eru með Sam Worthingon í aðalhlutverki, segja frá leitinni að Kaczynski.
La casa de papel (Money Heist)
Hér eru á ferðinni þættir sem hafa hlotið einróma lof gagnrýnenda. Þetta eru spænskir þættir sem segja frá átta bíræfnum ræningjum sem freista þess að ræna Seðlabanka Spánar. Þættirnir eru með einkunnina 8,8 á IMDB og hafa sem fyrr segir hlotið mikið lof. Þrettán þættir eru í fyrstu þáttaröðinni en þess má geta að önnur sería er væntanleg með vorinu.
Fleiri góðir og nýlegir þættir á Netflix
Altered Carbon
Seven Seconds
Riverdale
Tabula Rasa
Everything Sucks
Dirty Money
Jessica Jones
The Punisher