Kraftlyftingamaðurinn og leikarinn Hafþór Júlíus Björnsson baðar sig í sódavatni. Í það minnsta ef marka má myndband sem hann birtir á Facebook-síðu sinni. Hann segir að þetta sé hugmynd kærustu sinnar, Kelsey Henson.
Ekki verður betur séð en myndbandið sé auglýsing fyrir Sodastream. Ómögulegt er að átta sig á því hvort ísraelska gosfyrirtækið sé að grínast eða ætli í raun og veru reyna að selja fólki þessa hugmynd.
Sé farið inn á slóðina sem fylgir myndbandinu má sjá Hafþór haldandi á einhverskonar apparati, mögulega SodaStream-tæki fyrir baðkar, líkt og barni. Því er lofað að SodaSoak muni umbylta baðsferðum.
My girlfriend Kelsey always comes with the best ideas ❤️?getsodasoak.com
Posted by Hafþór Júlíus Björnsson – The Mountain on 26. mars 2018