fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
FókusKynning

Syrusson: Hágæða sérsmíðuð íslensk hönnunarhúsgögn

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 24. mars 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Okkar viðskiptavinir geta valið húsgögn alveg eftir sínu höfði, til dæmis lit, viðartegundir og áklæði, því við sérsmíðum allt og öll húsgögn til heimilisnota eru hönnuð og smíðuð hér á landi,“ segir Reynir Syrusson, eigandi Syrusson hönnunarhúss. Fyrirtækið hefur í 11 ár hannað og smíðað húsgögn fyrir íslensk heimili og vinnustaði.

„Við leggjum áherslu á fagmennsku, fágun og góðan efnivið við alla framleiðslu,“ segir Reynir en þrátt fyrir að um vandaða sérsmíði sé að ræða er verðið á húsgögnunum mjög hagstætt. Við bjóðum íslenska hönnuði velkomna með vörur sínar í sýningarrými okkar þar sem við viljum hafa Syrusson hönnunarhús sem hönnunarmiðstöð íslenskra gæðahúsgagna.

Syrusson býður upp á gífurlegt úrval af húsgögnum fyrir heimili en mikil áhersla er lögð á persónuleg samskipti, góða þjónustu og sveigjanleika í hönnun og efnisvali. Markmiðið er ávallt að uppfylla óskir viðskiptavinarins.

Bólstrun hefur alltaf verið stór hluti af hönnunar- og framleiðslustarfi Syrusson. Fyrirtækið býður bæði upp á bólstrun og endurbólstrun. „Smekkur manna er misjafn og þess vegna bjóðum við viðskiptavinum okkar að aðlaga vöru sína að þeirra stíl með breiðu efnisúrvali. Viðskiptavinurinn fær möguleika á að velja úr úrvali áklæða, leðurs eða leðurlíkis, hann fær einnig að velja stífleika í svampi og lit á þræði sem saumaður er í húsgagnið. Með þessum sveigjanleika hefur viðskiptavinurinn möguleika á að aðlaga vöru sína og upplifa þá fjölbreyttu möguleika sem við bjóðum upp á. Með áratuga reynslu í faginu bjóðum við upp á gæðabólstrun og endurbólstrun.“

Auk heimilishúsgagna selur Syrusson mikið af húsgögnum til fyrirtækja og stofnana. Í þeirri sölu koma vönduð innflutt húsgögn oft við sögu og má segja að hæfileg blanda af innfluttum og íslenskum húsgögnum þjóni viðskiptavinum best. Syrusson veitir fyrirtækjum oft heildarlausnir á þessu sviði og sérsmíðar húsgögn inn í rými.

Syrusson er með verslun að Síðumúla 33, Reykjavík. Þar er opið mánudaga til föstudaga frá 9 til 18 og laugardaga frá 12 til 16. Þangað er gaman að koma og skoða allt úrvalið en umfram allt veita starfsmenn faglega ráðgjöf. Þeir koma líka gjarnan í heimsókn til viðskiptavina þegar þörf er á heildarlausn og þá er sest niður, málin rædd og bestu lausnirnar fundnar í sameiningu. Til að óska eftir fundi er gott að hringja í 588-4555 eða senda fyrirspurn á syrusson@syrusson.is.

Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni syrusson.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum