Katrínu dreymdi um að taka þátt í fegurðarsamkeppni allt frá því að hún var ung stúlka. Árið 2015 fékk Katrín loksins tækifæri til þess að taka þátt en þá var búið að afnema hæðartakmörkun í keppnunum.
„Þar sem ég er aðeins 155 sentimetrar á hæð var ég alltaf langt undir meðalhæð og hélt ég fengi aldrei tækifæri til þess að taka þátt. Ég hafði ekki hugmynd um hvað ég var að fara út í og voru sumar stelpurnar alltaf svo fínar á meðan ég var bara í gallabuxum og bol með ógreitt hárið.“
Katrín segir að það sem hafi komið henni hvað mest á óvart var hversu mikið af niðrandi athugasemdum var skrifað um keppendurna á netinu.
„Persónulega myndi ég aldrei tala illa um aðra manneskju þrátt fyrir að ég sé kannski ekki sammála því sem hún er að gera, en svona erum við misjöfn.“
Meira um málið á Bleikt.is