fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Einstök mottulistaverk til stuðnings Krabbameinsfélagi Íslands

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 23. mars 2018 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hönnunarverslunin Lumex stendur fyrir stórmerku átaki til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands núna í Mottumars – átaki sem um leið er viðburður í hönnun og list. Í samstarfi við fyrirtækið Moooi Carpets í Hollandi hefur Lumex hannað tvær mottur sem eru jafnframt listaverk. Gripirnir verða aðeins gerðir í takmörkuðu upplagi hvor og seldir á uppboði sem stendur yfir á vef Lumex, lumex.is, út marsmánuð.

Hjörtur Matthías Skúlason er hugmyndasmiður að verkefninu: „Þetta er mitt hugarfóstur. Ég sé um verslunina fyrir Lumex-fjölskylduna en ég er lærður vöru- og konsepthönnuður. Við fórum af stað með þetta verkefni fyrir nokkru og kynntum afurðina síðasta föstudag. Þau hjá Moooi Carpets voru svo ánægð með þetta að þau komu hingað og voru með okkur um helgina,“ segir Hjörtur.

Tveir myndlistarmenn lögðu til myndverk sín í verkefnið. „Myndirnar þeirra eru prentaðar á mottur og útkoman er frábær,“ segir Hjörtur. Listamennirnir eru Ingimar Einarsson og Kristinn Már Pálmason. Ingimar lærði myndlist í Chelsea College of Art and Design í London og China Academy of Art í Hangzhou í Kína. Undanfarin ár hefur hann lagt áherslu á ljósmyndun í mjög víðum skilningi og meðal verkefna hans er klippimyndasería sem unnin er upp úr ljósmyndum frá öllum höfuðborgum Evrópu.

Kristinn Már Pálmason er fæddur í Keflavík árið 1967. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands upp úr 1990 og The Slade School of Fine Art, University College London á seinni hluta sama áratugar. Kristinn á að baki fjölda einkasýninga auk þátttöku í samsýningum og samvinnuverkefnum. Hann hefur komið að ýmiss konar menningarstarfsemi og skipulagningu listviðburða.

 Tilvalið að kíkja í sýningarsalinn í Skipholti

Sem fyrr segir stendur uppboðið á mottunum út þennan mánuð og rennur ágóðinn af sölunni af mottum, þremur af hvorri, til Krabbameinsfélags Íslands. Þrír hæstbjóðendur í hvora mottu fyrir sig hreppa eintak. Hægt er að skrá sig í uppboðið á vefsíðunni lumex.is undir efnisliðnum Mottumars. Útbúinn hefur verið sýningarsalur með mottunum í verslun Lumex að Skipholti 37 þar sem þær njóta sín vel í allri sinni dýrð.

Lumex – Hjörtur

„Þetta fer aldrei í almenna sölu. Þetta eru bara listaverk sem eru gerð í takmörkuðu upplagi. En það er öllum frjálst að taka þátt í uppboðinu og það eru líka allir velkomnir í sýningarsalinn okkar í Lumex í Skipholti til að skoða dýrgripina,“ segir Hörtur.

Sjá nánar á lumex.is og á Facebooksíðunni Lumex.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum