Óhætt er að segja að mörgum myndi hrylla við það hráefni sem Katla Ásgeirsdóttir notar í myndlist sinni. Hún hefur málað tíu myndir með eigin túrblóði en verkin eru til sýnis í Háskóla Íslands, þar sem Túrdagar eru standa yfir. Katla teiknar svo kvenlíkama ofan í blóðið.
Fréttablaðið greindi fyrst frá þessu. „Ég er búin að nota álfabikarinn lengi. Þegar maður losa úr bikarnum horfir maður á blóðið renna og mér finnst það bara fallegt, glansandi hvít postulínsskál og ferskt blóð, það er ekkert ógeðslegt við það,“ segir Katla í samtali við Fréttablaðið.
Katla segir að ríkjandi viðhorf sé að túrblóð sé bannsvæði. „Eftir að ég eignaðist strákinn minn þá var ég rosalega mikið að pæla í því hversu mikils það væri ætlast af líkömum kvenna og hvernig við eigum að gera þessa stórkostlega erfiðu hluti sem reyna á líkama okkar og á sama tíma standa frammi fyrir gífurlegum samfélagslegum þrýstingi um að falla að einhverri óraunhæfri staðalímynd,“ segir Katla við Fréttablaðið.
Katla segir að strákurinn hennar hafi gaman af myndunum. „Þegar vinir hans koma í heimsókn þá bendir hann á þetta og segir þeim að þetta sé blóð […]Stundum þegar hann vaknar á morgnana þá liggja pappírsarkir ataðar blóði á gólfinu að þorna. Ég hef allavega haft áhrif á eina manneskju sem verður ekki hrædd við túrblóð í framtíðinni,“ segir Katla.