fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Nýstárlegt jóladagatal Ágústu og Guðlaugs – Losa 2100 hluti út af heimilinu í desember

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 3. desember 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

 „Það eru sirka fjögur ár síðan að ég sá að þetta var orðið glórulaust rugl og ég var orðinn fangi eigna minna,“ segir Ágústa Margrét Arnardóttir á Djúpavogi sem ætlar að vera með nýstárlegt jóladagatal á sínu heimili í desember. Í viðtali við Austurfrétt.is segir Ágústa Margrét nánar frá þessu desemberátaki fjölskyldunnar.

Ágústa Margrét og maður hennar, Guðlaugur Birgisson, eiga fimm börn. Þau hafa síðustu ár unnið að því að einfalda líf fjölskyldunnar. Í stað þess að börnin fái dagatal sem inniheldur sælgæti eða ótal hluti stefnir fjölskyldan að því að losa sig við 2100 hluti af heimilinu í desember.

„Eftir að við eignuðust börnin hafa allar eigur okkar aukist alveg svakalega eins og gefur að skilja. Við erum sjö í heimili og magnið af öllu sem við áttum var orðið svo langt umfram það sem við náðum að halda utanum og skipuleggja,“ segir Ágústa Margrét.

„Að lifa mínimalískum og nægjusömum lífstíl virkar kannski vanþakklætislegt og leiðinlegt en það er þó alls ekki þannig, því að allt sem hefur tilgang og skiptir okkur máli, það eigum við. Ég kýs að kalla heimilið okkar „lifandi heimili“. Þar eru hlutirnir alltaf á ferðinni, það eru engir hlutir sem má ekki snerta eða leika sér með. Við málum, föndrum og búum til virki úr pappakössum inn í stofu, það eru í raun engin takmörk fyrir því hversu skemmtileg og skapandi við getum verið inn á heimilinu. Ef þar eru hlutir sem við höfum ekki hreyft eða notað í marga mánuði, já eða ár, þá veltum við því fyrir okkur hvort þeir eigi að vera áfram eða ekki,“ segir Ágústa Margrét.

Yfir 1000 hlutir inn á heimilið á aðfangadagskvöld
Ágústa Margrét segir að magn hluta sem berst inn á hvert heimili í desember sé svakalegt. „Börnin mín fá sirka tíu gjafir hvert á aðfangadag. Það eru þá 50 gjafir til þeirra og sjaldnast er einn hlutur í hverri gjöf, samanber ef þau fá til dæmis kubbakassa, þannig að fjöldi þeirra hluta sem kemur inn á heimilið í desember er ekki lengi að rjúka upp. Þá má einnig tala um pappírinn, pakkaböndin og allar pakkningarnar utan um dótið, húsið bara fyllist á aðfangdagskvöld. Þetta er ekki það eina. Svo eru það skógjafirnar, sem eru 65 á mínu heimili. Þá er einnig krafa um að allir eigi jóladagatal og nú er hægt að fá þau með allskonar hlutum á borð við LEGO, Playmo, með 24 glossum eða baðkúlum,“ segir Ágústa Margrét, en hugmyndin að jóladagatali fjölskyldunnar kviknaði einmitt þegar dóttir hennar bað um að fá eitthvad svona „dótadagatal.“

„Fyrst ætlaði ég bara að losa einn hlut á dag frá 1. desember og fram að jólum, á hvert okkar. Ég varpaði hugmyndinni fram á Fabebooksíðu um minimaliskan lífsstíl og var þar bent á að algengt væri að fólk tæki einn mánuð á ári og losaði um einn hlut fyrsta dag mánaðarins, tvo hluti annan dag mánaðarins og svoleiðis gengi það þar til 30, eða 31 hlutir færu síðasta dag mánaðarins. Mér þótti sú hugmynd mjög róttæk í fyrstu og hvað þá að gera það í nafni allra á heimilinu. Eftir litla umhugsun sá ég að það væri ekkert mál, hvað þá í ljósi þess að yfir 1000 hlutir koma inn bara á aðfangadagskvöld. Það er ekki hægt að stafla bara og það er ekkert vit í því að vera með fulla kassa eða skápa af dóti sem enginn notar, þá er betra að gefa heim framhaldslíf annars staðar.

Meiri samverutími besta jólagjöfin
Ágústa Margrét segir að með þessu fái hún sjálf risastóra jólagjöf. „Það er ég sem ver mestum tíma af okkur öllum í að taka til á heimilinu og reyna að hafa hemil á öllu þessu dóti. Með þessu er öll fjölskyldan að hjálpast að við að gefa mér meiri frítíma á aðventunni, sem er besta jólagjöf sem ég get hugsað mér. Það verður minna að taka til og því verða gæðastundirnar fleiri sem við eigum í leik, samveru og útivist, en fyrir það lifum við. Stór partur af því að einfalda lífið með því að eiga færri hluti en meiri upplifanir og gæðastundir.

Okkar lífsstíll snýst um að lifa, njóta, ferðast og leika okkur og þar koma fjármálin vissulega inn í. Hversu svekkjandi er að maður sé farinn að borga fasteignagjöld eða af íbúðalánum utan um dót, í stað þess að geta frekar verið í minna húsnæði eða þá búið til pláss til að dansa og leika,“ segir Ágústa Margrét, en hægt er að fylgjast með jóladagatali fjölskyldunnar á Snapchat undir leitarorðinu; whattodoin.

Viðtalið má lesa í heild sinni á Austurfrétt.is.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki