Marta María Jónasdóttir, ritstjóri Smartlandsins á MBL, fær nokkuð óvænt hrós innan Facebook-hóps Sósíalistaflokks Íslands. Þar hrósar Gunnar Smári Egilsson, einn stofnenda flokksins, henni fyrir frétt um Ármann Þorvaldsson.
Fréttin er nokkuð beitt, en fyrirsögnin er „Þetta er húsið sem Ármann kom undan.“ Marta sýnir í fréttinni húsið sem Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku og fyrrverandi forstjóri Kaupþings í London, skráði á eiginkonu sína stuttu áður en félag hans var tekið til gjaldþrotaskipta.
Gunnar Smári segir það lýsandi að meira að segja Smartlandi er ofboðið. „Meira að segja Smartlandi er ofboðið hvernig allt aðrar reglur gilda um elítuna en almúgann, er þó að hluta til byggt á þeirri fjölmiðlahefð að bjóða almúganum upp á elítu að dást að og öfunda. En íslenska elítan er svo spillt að Smartland getur ekki boðið upp á hana,“ skrifar Gunnar Smári.