fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Góðverkadagur Dalvíkurskóla – Hvetur nemendur til samkenndar og góðvildar

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 13. desember 2018 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Góðverkadagur Dalvíkurskóla hefur fest sig í sessi sem ein af aðventuhefðum skólans. Þá fara nemendur um bæinn og breiða út kærleika og gleði með ýmsum hætti.

Yngsti hópurinn í 1. og 2. bekk fer um og syngur jólalög fyrir vegfarendur, 3. og 4. bekkur dreifir miðum með fallegum orðum, stinga miðum inn um bréfalúgur hjá fólki og gefa þeim sem vilja jólaknús. 5. bekkur fer á leikskólann og aðstoðar þar við ýmis verk og nemendur 6. bekkjar dreifast á nokkra sveitabæi og hjálpa til við verkin.

Nemendur unglingastigs fá að velja sér verkefni og er þar ýmislegt í boði. Haft er samband við fyrirtæki með góðum fyrirvara og þeim boðin hjálp. Kjörbúðin, Húsasmiðjan, Íþróttamiðstöðin, áhaldahús bæjarins, veitingastaðir, bókasafnið, hesthúsið í Hringsholti, Árskógarskóli, Olís og fleiri fá aðstoð þennan dag. Einnig er haft samband við nokkra eldri borgara og öryrkja og fara nemendur í heimsókn þangað og vinna þar ýmis verk, svo sem moka snjó eða dreifa sandi, baka smákökur, skreyta, þrífa eða bara spila og spjalla við íbúana.

Nemendur af unglingastigi fara einnig á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Dalbæ og aðstoða þar við jólaskreytingar, laufabrauðsútskurð, bjóða upp á handsnyrtingu og ýmislegt annað sem skipulagt er af starfsfólki.

„Það er virkilega gaman að fylgjast með nemendum þennan dag. Undantekningalaust eru þau dugleg og samviskusöm við þau verk sem þeim eru falin og vinna þau með bros á vör og uppskera þakklæti þeirra sem þiggja,“ segir í frétt frá skólanum.

Þessi góðverkadagur vekur nemendur okkar til umhugsunar um hve mikils virði það er að sýna samkennd, virðingu og góðvild í verki og eykur ábyrgðartilfinningu þeirra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar