fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Monki opnar í Smáralind í vor

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 12. desember 2018 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Monki opnar í Smáralind

Skandinavíska tískumerkið Monki, sem margir Íslendingar þekkja vel opnar sína fyrstu verslun á Íslandi í vor. Verslunin verður staðsett í Smáralind í 450 fermetra rými.

Monki er sænskt vörumerki og hönnun þess er innblásin af norrænni hönnun og asískri götutísku.

Grunngildi og markmið Monki snýst um að valdefla ungar og sjálfstæðar konur um allan heim, hvetja þær til tjáningar og þess að vera stoltar af sjálfri sér.

„Ísland er nýr og afar spennandi markaður fyrir okkur,“ segir Jennie Dahlin Hansson fram­kvæmdastjóri Monki í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. „Við hlökkum mikið til að sjá hvernig ís­lenskir tískuunnendur taka á móti Monki“.

Smáralind orðin miðstöð alþjóðlegra vörumerkja

Þá var einnig tilkynnt um opnun Weekday í Smáralind fyrir skemmstu auk þess sem H&M Home opnaði flaggskipsverslun sína í Smáralind 6. desember í 900 fermetra rými.

„Smáralind er á lokametrunum á löngu endurskipulagningarferli og okkur hefur tekist að ná til landsins sterkum og vinsælum vörumerkjum sem sjá hag sinn í að opna verslanir sínar í Smáralind, umfram öðrum stöðum. Við erum afar spennt fyrir komandi misserum í Smáralind enda tímamót í verslunarsögu landsins að fá öll þessi sterku erlendu vörumerki til starfa á íslenskum markaði og frábærar fréttir fyrir íslenska neytendur sem þurfa ekki lengur að leita út fyrir landssteinana til að sækja slík vörumerki,“ segir Sturla G. Eðvarðsson, framkvæmdastjóri Smáralindar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“