Tónlistarmaðurinn Mosi var nýverið að gefa frá sér plötuna Partytown. Eins og nafnið gefur að kynna er um hressa plötu að ræða og eru lögin á plötunni með áhrifum frá 70’s & 80’s dans- og popptónlist. Mosi hefur fundið sinn eigin stíl þar sem hann blandar saman nútíma electro tónlist, hiphoppi og danstónlist við áhrif frá gömlu diskó, sál, funki, poppi & rokki.
Í tilefni útgáfu Partytown verður blásið í tónleikaveislu á Hard Rock Café þann 12. desember þar sem Mosi kemur fram ásamt hljómsveitunum Beebee and the bluebirds, InZeros og comedy bandinu Bergmál. Tónleikarnir byrja kl. 21 og er hægt að nálgast miða hér.
Mosi og Beebee and the bluebirds tóku nýverið þátt í tónlistarhátíð Iceland Airwaves þar sem þau spiluðu bæði á Hard Rock Café við frábærar viðtökur og mikla stemningu.
Tónleikarnir byrja á léttum nótum með stelpunum í Bergmál áður en Beebee and the Bluebirds leiða okkur inn í kvöldið. Mosi ásamt hljómsveit mun síðan spila lög af plötunni PartyTown ásamt fleiri nýjum lögum. Síðan munu Party-Glysrokkararnir í InZeros enda kvöldið með stæl eins og þeim einum er lagið.