fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Elenora Rós heldur kærleiksjól til styrktar Ég á bara eitt líf – „Kærleiksríkt og skemmtilegt eins og jólin eiga að vera“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 7. desember 2018 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elenora Rós Georgesdóttir er 17 ára gömul og hefur frá unga aldri haft mikinn áhuga á kökum og bakstri. Elenora er jólabarn, enda fædd á Þorláksmessu, og í anda jólanna gefur hún af sér og heldur Kærleiksjól í Fríkirkjunni laugardaginn 8. desember, en allur ágóði viðburðarins mun renna til Minningarsjóðs Einars Darra.

Elenora hefur frá unga aldri bakað með móður sinni. „Mamma mín er svo klár að baka og skreyta kökur og það er eitthvað sem við gerðum oft saman og ég hef haft mikinn áhuga á síðan ég var krakki,“ segir Elenora. „Það er alltaf til eitthvert bakkelsi heima, kanelsnúðar, kleinur eða annað. Síðan þegar ég varð eldri fór ég að skoða uppskriftir á netinu og svona 11–12 ára gömul þá var ég farin að baka alveg sjálf.“

Það má því segja að baksturinn og áhugi á honum sé Elenoru í blóð borinn og hún ákvað að nýta áhugann alla leið og að loknum tíunda bekk skráði hún sig í nám í bakaraiðn í Menntaskólanum í Kópavogi. „Ég fór síðan á samning hjá Brauð&co og hefur aldrei liðið jafn vel eða fundist ég vera jafn velkomin eins og hér.“

Gaf til baka til Barnaspítalans

Elenora er með síðuna Le‘ Nores Cakes á Facebook, lenorescakess, og í fyrra hélt hún bollakökubasar og hljóp í Reykjavíkurmaraþoninu, allt til styrktar Barnaspítala Hringsins, en Elenora á honum og starfsfólki hans mikið að þakka. Elenora fæddist með líffæri utan líkamans, það er fæðingargalli sem ber nafnið Omphalocele. Hún þurfti á bráðaaðgerð að halda strax eftir fæðingu og hefur síðan þurft að leggjast oft inn á spítala, farið í fjölda aðgerða, 2–3 sinnum á ári, og fjölda skoðana.

„Mig langaði að gefa þeim til baka það sem þau hafa gert fyrir mig,“ segir Elenóra. „Ég hef fengið mikla þjónustu frá Barnaspítalanum og það er alveg sama þó að ég hafi verið erfið, til dæmis þegar lyfin hafa farið illa í mig, starfsfólkið er alltaf með bros á vör og kemur fram við mig eins og ég sé frábær einstaklingur.“

Jólin eru erfiður tími fyrir þá sem hafa misst ættingja eða vini

Í ár er annað málefni sem nýtur krafta Elenoru, Minningarsjóður Einars Darra, en Einar Darri Óskarsson var bráðkvaddur á heimili sínu 25. maí vegna lyfjaeitrunar. Hann var 18 ára. Eftir andlát hans stofnuðu fjölskylda hans og vinir Minningarsjóð og átakið Ég á bara eitt líf. En af hverju valdi Elenora að styrkja minningarsjóðinn?

„Ég á nokkrar vinkonur sem hafa misst foreldri og systkini rétt fyrir jól og jólin eru alltaf erfiður tími, jafnvel næstu ár á eftir, fyrir þá sem hafa misst nána ættingja,“ segir Elenora. „Ég er jafngömul Einari Darra og þekki eina af hans nánustu vinkonum, hún talar um að jólin í ár verði erfið fyrir sig.“

Jólin í ár verða fyrstu jólin sem ættingjar og vinir Einars Darra verða án hans. „Mig langaði að gera gott fyrir fjölskyldu hans, koma henni svolítið í jólaskap og láta henni líða vel yfir hátíðina, af því hún mun örugglega reynast þeim erfið. Mér finnst málefnið mikilvægt og eitthvað sem þarf að vekja athygli á.“

Vinkonur Elenoru aðstoða hana við baksturinn og munu borðin í Fríkirkjunni svigna undir kræsingum á laugardaginn. „Það verður opið hús og við erum með alls konar: sörur, smákökur, tertur, bollakökur, súkkulaði- og marengstertur og fleira. Við fengum salinn endurgjaldslaust og munum skreyta hann, og allt hráefni í baksturinn var gefins og þakka ég öllum þeim sem styrktu sérstaklega fyrir,“ segir Elenora.

Nokkrar ungar stúlkur munu einnig mæta og spila jólalög og halda uppi stemningunni.

Allir eru velkomnir og ekkert kostar inn en á staðnum verður söfnunarbaukur sem gestir geta sett frjáls framlög í. Einnig geta þeir sem vilja styrkja framtakið lagt beint inn á Minningarsjóð Einars Darra: kennitala: 510718-1510, reikningsnúmer: 552-14-405040.

„Mér finnst mikilvægt að allir fái að finna fyrir einstaka jólaandanum. Að sjá fólk koma saman, með fallegri tónlist og ljúffengu bakkelsi sem hörkuduglegt fólk hefur bakað með ást og alúð. Þetta verður notalegt, eftirminnilegt, kærleiksríkt og skemmtilegt. Nákvæmlega það sem jólin eiga að snúast um. Fullkomið tækifæri til að taka pásu í jólastressinu.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar