fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Karolina sigraði Bókaræmuna með örmynd byggðri á bók Stephen King

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 9. nóvember 2018 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úrslit Bókaræmunnar voru tilkynnt í Bíó Paradís í gær.

Karolina Irena Niton bar sigur af hólmi með örmynd sinni IT sem byggð er á bókinni um trúðinn ógnvænlega eftir Stephen King. Karolina er fædd árið 2003 og er 15 ára gömul og fékk hún í verðlaun Lenovo spjaldtölvu frá Origo, 8.000 kr. inneign frá Nexus, tvær bækur frá Bókabeitunni, hamborgaramáltíð fyrir tvo á Hamborgarabúllunni, bíómiða fyrir tvo frá Laugarásbíói og Bíó Paradís. Þess má geta að í fyrra hreppti Karolina annað sætið á Bókaræmunni þegar hún gerði örmynd um Carrie eftir sama höfund.

Hulda Eir Sævarsdóttir, sem einnig er 15 ára, var í öðru sæti en hún gerði örmynd um bókina Violet og Finch eftir Jennifer Niven. Hulda fékk í verðlaun 6.000 kr. gjafabréf frá Nexus, tvær bækur frá Bókabeitunni, hamborgaramáltíð fyrir tvo á Hamborgarabúllunni, bíómiða fyrir tvo frá Laugarásbíói og Bíó Paradís.

Í þriðja sæti var örmynd eftir þá Eirík Atla Karlsson og Sigurð Skorra Arnalds, sem báðir eru 16 ára gamlir. Þeir sóttu innblástur í bókina Vertu ósýnilegur eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. Þeir fengu hamborgaramáltíð fyrir tvo á Hamborgarabúllunni. Einnig fengu þeir, hvor um sig, 4.000 kr. gjafabréf frá Nexus, tvær bækur frá Bókabeitunni og bíómiða fyrir tvo Laugarásbíó og Bíó Paradís.

Dómarar voru Stefán Máni rithöfundur, Karl Pálsson leikari og tæknimaður hjá KrakkaRúv og Guðrún Baldvinsdóttir verkefnastjóri á Borgarbókasafninu.

„Þessi bókaræma stendur undir nafni; áhrifamikil ræma byggð á eftirminnilegri bók. Bókin er sýnd en í stað orða eða upplesturs er myndmálið láta tala sínu máli. Hinn hrollvekjandi andi bókarinnar er fangaður með handheldri myndavél, einföldum en áhrifaríkum tæknibrellum og drungalegri hljóðrás. Þeir sem hafa lesið bókina endurupplifa gæsahúðina sem hún kallaði fram, og þeir sem enn eiga eftir að lesa hana hljóta að bæta úr því núna – ef þeir þora!,“ segir dómnefndin um sigurmyndina.

1.sæti: Karolina Irena Niton- IT eftir Stephen King

2.sæti: Hulda Eir Sævarsdóttir – Violet og Finch eftir Jennifer Niven

3.sæti: Eiríkur Atli Karlsson og Sigurður Skorri Arnalds

Vertu ósýnilegur eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur

Bókaræman er örmyndakeppni um bækur þar sem ungt fólk á aldrinum 13-20 ára senda inn örmyndbönd (30-90 sekúndur) sem fanga umfjöllunarefni einnar bókar. Þátttakendur velja sjálfir bókina og aðferðin er frjáls. Veglegir vinningar eru í boði frá styrktaraðilum og árið 2018 voru það Origo, Hamborgarabúllan, Bókabeitan Nexus, Bíó Paradís og Laugarásbíó.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“