fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Ásta Björk og Simon unnu í dansþættinum Vild med dans

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 24. nóvember 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásta Björk Ívarsdóttir og dansfélagi hennar, leikarinn Simon Stenspil, eru sigurvegarar í þáttunum Vild med dans sem sýndir eru á dönsku sjónvarpsstöðinni TV2. Um er að ræða dönsku útgáfuna af þáttunum Dancing With The Stars, sem hétu í íslenskri útgáfu Allir geta dansað.

Ásta Björk er lærður dansari og var fagdansari í þáttunum, en hún hefur áður tekið þátt sem svokallaður myndavéladansari. Þættirnir njóta gríðarlegra vinsælda í Danmörku, en þáttaröðin var sú fimmtánda í röðinni frá því að þættirnir hófu sýningar árið 2005. Þetta er í fyrsta sinn í sögu þáttanna sem fagdansari sigrar í fyrstu tilraun.

„Ég er glaður og stoltur. Þetta er tryllt,“ sagði Simon þegar úrslitin voru ljós og hrósaði hann Ástu Björk. Jens Werner, einn dómaranna, sagði að dans parsins hefði verið besti úrslitadans sem hann hafi séð. Þau fengu fullt hús stiga fyrir lokadansinn, og alls 114 stig fyrir kvöldið, en þau fluttu þrjá dansa.

Hér má sjá sigurdans Ásta Bjarkar og Simons og tilkynningu úrslitanna.

https://www.instagram.com/p/BpuQkpoAy23/

https://www.instagram.com/p/BoBW84egSQr/

https://www.instagram.com/p/BqkIpHrH_iE/

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar