Ingibjörg Bjarnadóttir, sem aldrei var kölluð annað en Stúlla, féll frá þann 4. nóvember síðastliðinn. Hún var 68 ára gömul. Stúlla var þjóðþekktur spámiðill og gríðarlega eftirsótt sem slík. Í umfjöllun Viljans kemur fram að Stúlla hafi verið goðsögn í lifandi lífi og að hún hafi veitt fólki í viðskiptalífinu, stjórnmálum og afreksfólki í íþróttum ráðgjöf. Hún hafi jafnvel sótt það heim á erlendri grundu. Hún hafi átt einstakt samband við fjölda þjóðþekktra einstaklinga um áratugaskeið sem sjá nú á eftir dýrmætri vinkonu.
„Nú hefur hún Stúlla mín skipt um vinnustað eða kannski um skrifborð, en hún vann alltaf á tveimur stöðum í einu; hérna megin og hinum megin,“ skrifar Bjarni Ákason, fyrrum eigandi Apple umboðsins á Íslandi, í aðsendri minningargrein í Morgunblaðinu.
Hann segist hafa kynnst Stúllu um aldamótin þegar mælt var með því að hann myndi fara á fund þessa fræga sjáanda. „Ég hafði nú gaman að því að fá fréttir af mér að handan og þegar hún hringdi í mig þá spurði ég hana oft í gríni hvað væri eiginlega að frétta af mér,“ segir Bjarni.
Hann segir að mikill vinskapur hafi tekist með þeim og að Stúllla hafi verið ótrúlega litskrúðug persóna sem sagði endalausar óborganlegar sögur sem varla eru þó prenthæfar.
„Stúlla fór ekki framhjá neinum. Man sérstaklega þegar hún heimsótti mig til Kaupmannahafnar veturinn 2007 og kannski lýsir það stælnum á minni, kom með tvær töskur; Köbentöskuna og svo Barcelonatöskuna en það var endastöðin á þessari ferð. Ég bjó steinsnar frá Café Viktor þar sem ég var búinn að panta boð fyrir mig, hana og konuna mína, en hún gat nú alls ekki labbað þessa fáu metra því steinarnir gætu skemmt skónna. Að sjálfsögðu var pantaður taxi þessa stuttu ferð sem líklega hefur aldrei verið gert í kóngsins Köben, enda norðlenska drottning sjálf þarna á ferð,“ segir Bjarni.
Hann segir að Stúlla hafi kunnað að lifa lífinu og hafi alltaf verið til í að hjálpa öllum sem áttu í vandræðum eða áttu um sárt að binda, enda fann hún sannkallaða samkennd með fólki sem átti bágt. Bjarni minnist greinilega vinkonu sinnar með mikilli hlýju.
Annar vinur Stúllu var fyrrum fótboltakempan og viðskiptamaðurinn Sævar Jónsson, oft kenndur við Leonard. Hann minnist einnig Stúllu með mikilli hlýju.
„Stúlla var mjög sérstakur karakter og vakti athygli hvert sem hún fór, það fór ekkert á milli mála þegar drottningin var mætt,“ segir Sævar.
Hér má lesa umfjöllun Viljans í heild sinni.