Anna Lilja Johansen og Grímur Alfreð Garðarsson eru eitt af glæsilegri pörum landsins. Parið hefur verið að hittast í nokkra mánuði og geislar af ást og hamingju.
Anna Lilja giftist Þorsteini M. Jónssyni, sem ávallt var kallaður Steini í kók. Ekkert var til sparað í brúðkaupi þeirra, athöfnin fór fram í Hallgrímskirkju og veislan í Súlnasal Hótel Sögu. Þremur árum síðar voru þau skilin.
Anna Lilja var einnig í sambandi með hæstaréttarlögmanninum Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni til nokkurra ára.
Grímur var giftur Helgu Árnadóttur, einum eigenda Best Seller-veldisins, sem rekur meðal annars verslanirnar Vero Moda, Jack and Jones og fleiri verslanir. Grímur hefur einnig verið öflugur í viðskiptalífinu og er meðal annars einn eigenda fjárfestingarfélagsins Varða Capital.