fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Logi Bergmann: Svona er hinn dæmigerði Íslendingur – Fyrirlítur stórfyrirtæki en samt í klappliði Costco og H&M

Fókus
Laugardaginn 10. nóvember 2018 09:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Sumt er svo undarlegt. Maður getur haft ákveðna skoðun á einhverju sem passar svo engan veginn við aðra hluti sem maður gerir,“ segir fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson í vikulegum pistli sínum í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.

Óhætt er að segja að Logi hitti naglann á höfuðið í pistlinum þar sem hann skrifar um þá sem segja eitt og gera svo eitthvað annað. Logi er sjálfur ekki alsaklaus í þeim efnum – ekki frekar en margir aðrir Íslendingar, hugsanlega allir.

„Ég get til dæmis ekki hugsað mér að drepa dýr. Þegar ég fékk mús í bílskúrinn fannst mér algjört grundvallaratriði að nota gildru sem myndi ekki meiða hana. Ég náði músinni og sleppti henni úti í náttúrunni. Og var satt að segja soltið stoltur af því,“ segir Logi sem viðurkennir að áður en þetta björgunarafrek var unnið hafi hann sigað köttunum á bílskúrinn.

„Sem betur fer án árangurs, en mér fannst sem sagt allt í lagi að fá leigumorðingja í verkið! Það er ekki glóra í þessu. Mér finnst mikilvægt að fólk fái mannsæmandi laun. Samt finnst mér frábært að fara til landa þar sem allt er ódýrt. Jafnvel þó að ég viti að forsenda þess er að fólkið í viðkomandi landi er á lúsarlaunum. Ég vil endilega bæta almenningssamgöngur og að sem flestir noti strætó. Sjálfur gerði ég það sennilega síðast þegar ég fór á löggustöðina að sækja ökuskírteinið. Við erum öll svona og dæmin eru óteljandi,“ segir Logi sem nefnir síðan nokkur dæmi máli sínu til stuðnings.

„Hversu marga þekkið þið sem brjálast yfir fréttum af skattsvikum en eru svo alltaf til í að græja hluti nótulaust? Eða fyrirlíta stórfyrirtæki og auðhringi en voru svo algjörlega á trampolíninu yfir að fá Costco og H&M? Muniði hvað það var sjúklega mikið mál að halda sjálfstæði Seðlabankans? Þegar hann svo hækkar vexti (með einhverjum miklum hagfræðirökum) þá verðum við alveg galin og heimtum pólitísk afskipti. Við viljum líklega öll að þeir sem minna mega sín og eiga við ýmis vandamál að stríða fái einhvers konar mannsæmandi aðstöðu og geti búið einhvers staðar. Bara ekki í hverfinu okkar. Við styðjum líklega öll málfrelsi en verðum svo brjáluð þegar einhver segir eitthvað sem við erum ósammála. Viljum jafnvel banna honum að tala af því hann er með svo sjúklega vondar skoðanir. Við viljum fá ferðamenn en bara ekki svona marga. Þeir eiga samt að skila öllum peningunum sínum. Við viljum bílastæði en ekki bíla, við viljum draga úr mengun en fá ódýrara bensín. Við viljum kaupa ódýrt í stórmörkuðum en samt hafa kaupmann á horninu. Við viljum auka öryggi í umferðinni en trompumst þegar við fáum hraðasekt,“ segir Logi sem endar pistilinn á þessum orðum:

„Það er nefnilega svo að það er harla fátt sem er ókeypis. Ef við ætlum að fá eitthvað verðum við yfirleitt að láta eitthvað af hendi. Það getur hins vegar stundum verið erfitt að láta hljóð og mynd passa saman. Annað var það nú ekki. Góðar stundir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“