Um síðustu helgi vakti frétt um nýjan kærasta tónlistarkonununnar Svölu Björgvins mikla athygli. Sá lukkulegi heitir Guðmundur Gauti Sigurðarson, alltaf kallaður Gauti. Ástæðan fyrir áhuga lesenda var ekki síst sú staðreynd að 18 ára aldursmunur er á parinu. DV tók því saman fleiri dæmi um glæsilegar valkyrjur sem hafa valið sér yngri maka.
Svava Johansen og Björn K. Sveinbjörnsson
Eitt glæsilegasta par landsins er hjónin Svava Johansen, gjarnan kennd við Sautján, og Björn K. Sveinbjörnsson. Saman reka þau NTC og tengdar verslanir. Þau hafa verið saman síðan 2005 en Svava er fjórum árum eldri en Björn.
Ágústa Johnson og Guðlaugur Þór
Það vakti mikla athygli árið 1999 þegar líkamsræktarfrömuðurinn Ágústa Johnson og borgarfulltrúinn Guðlaugur Þór Þórðarson fóru að stinga saman nefjum. Það er einkenni góðs sambands að báðir aðilar blómstri og það gildir svo sannarlega um þau hjónin. Guðlaugur Þór er utanríkisráðherra þjóðarinnar og heilsutengd viðskipti Ágústu mala gull.
Guðrún Gunnarsdóttir og Hannes Friðbjarnarson
Það er eitthvað með tónlistarfólk og þessi töfrandi tólf ár. Það er einmitt aldursmunurinn á söng- og fjölmiðlakonunni Guðrúnu Gunnarsdóttur og Hannesi Friðbjarnarsyni tónlistarmanni. Þau skötuhjúin hafa verið saman um árabil og geisla af hamingju.
María Björk Sverrisdóttir og Örn Sævar Hilmarsson
Tólf ára aldursmunur er á tónlistarkonunni Maríu Björk Sverrisdóttur og manni hennar, athafnamanninum Erni Sævari Hilmarssyni. María Björk er þekktustu fyrir samnefndan söngskóla sinn, sem hún hefur rekið í aldarfjórðung, og útgáfu hins geysivinsæla barnaefnis Söngvaborgar, í samstarfi við Siggu Beinteins. Þá var hún umboðsmaður söngkonunnar Jóhönnu Bjargar auk þess sem hún hefur gert það gott með framlagi sínu í Eurovision-keppninni.
Sigríður Beinteinsdóttir og Birna María Björnsdóttir
Tólf ára aldursmunur er á tónlistarkonunni góðkunnu og sambýliskonu hennar, Birnu Maríu. Parið eignaðist tvíbura, son og dóttur, fyrir tæpum átta árum og hefur Sigríður látið hafa eftir sér að eðlilegra væri að hún væri amma barna sinna en móðir.