Við á Fókus elskum ástina og ný pör og nýlega barst okkur til eyrna að tvær af föngulegustu konum landsins væru gengnar út.
Arna Ýr Jónsdóttir, fyrrverandi Ungfrú Ísland og Miss Universe Iceland, sem starfar sem flugfreyja hjá WOW air og Vignir Þór Bollason eru par sem tekið er eftir. Vignir Þór starfar sem kírópraktor og er sá eini hér á landi sem hefur lokið þjálfun í svokallaðari Webster-tækni, sem er sérhæfð meðferð fyrir óléttar konur.
Bára Jónsdóttir kom, sá og sigraði þegar hún keppti á bikarmótinu í fitness í nóvember í fyrra. Þar vann hún þrjá titla á mótinu, fyrst kvenna til að ná þeim árangri eftir að hafa æft íþróttina í aðeins fimm mánuði. Bára sem starfar sem flugfreyja hjá WOW air gengur undir nafninu Bára beauty, en hún er algjör snillingur þegar kemur að förðun, bæði hefðbundinni og hrekkjavökuförðun.
Bára skráði sig í byrjun september í samband með Benedikt Hlöðverssyni, sem er sex árum yngri en hún. Fókus þekkir því miður engin deili á honum fyrir utan að þau virðast deila áhuganum á ræktinni.
Lestu einnig: Bára er þrefaldur fitnessmeistari eftir að hafa æft í fimm mánuði.