fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Þetta eru ódýrustu einbýlishús landsins: 109 fermetrar á 3 milljónir

Tómas Valgeirsson
Föstudaginn 26. október 2018 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Til eru ótalmörg dæmi um einbýlishús sem selst hafa á 100 til 200 milljónir króna að undanförnu. En þau eru einnig til einbýlishúsin á landinu sem kosta lítið sé miðað við önnur hús, til dæmis á höfuðborgarsvæðinu.

Ódýrustu einbýlishúsin á landinu kosta á bilinu þrjár til fimm milljónir króna.

Hér að neðan má sjá yfirlit yfir 10 ódýrustu einbýlishús landsins. Hafa ber í huga að ekki er tekið tillit til ástands húsanna, en sum þurfa augljóslega á talsverðu viðhaldi að halda.

 

Vestmannabraut, Vestmannaeyjum

Stærð: 173 fermetrar
Byggingarár: 1913
Verð: 10,9 milljónir

Þetta er fimm herbergja einbýlishús, sem er kjallari, hæð og ris. Rýmið er hrátt og þarfnast endurbóta. Sum gler eru brotin og múrklæðning þarfnast skoðunar.

Hér má skoða nánar

 

Búðir, Grindavík

Stærð: óuppgefið
Byggingarár: 1928
Verð: 9 milljónir

Um er að ræða 4 herbergja einbýlishús að Búðum í Grindavík. Ef nýta á húsið til búsetu er mikil þörf á endurbyggingu. Eignin er í mjög slæmu ástandi þarfnast mikilla endurbóta að utan sem innan. Svo dæmi séu nefnd eru lagnir ónytar og þarf að endurnýja alla ofna í húsinu. Loftaefni þarnast endurnýjunar. Baðherbergi þarfnast mikils viðhalds. Gólefni eru ónýt og er mjög mikill músagangur í eigninni.

Hér má skoða nánar

 

Sandskeið, Dalvík

Stærð: 225 fermetrar
Byggingarár: 1914
Verð: 8,5 milljónir

Þetta hús á Dalvík þarfnast töluverðra endurbóta, meðal annars á klæðningu, gluggum, útihurðum og þaki. Rakaskemmdir eru á nokkrum stöðum í eign og merki um leka. Gólfefni vantar að nokkrum hluta og einnig innanhússklæðningu. Staðsetning er þó góð og nærri fjörunni syðst á hafnarsvæðinu.

Hér má skoða nánar

 

Strandgata, Eskifirði

Stærð: 95 fermetrar
Byggingarár: 1914
Verð: 8,5 milljónir

Hér höfum við steinhús, byggt snemma á síðustu öld.

Höfum í einkasölu 95 ferm. gamalt og gott steinhús, byggt árið 1914.  Á hæðinni eru forstofa, salerni, eldhús, búr og tvær stofur.  í risi eru þrjú svefnherbergi, eitt þeirra mjög lítið.  Í kjallara er þvottahús og geymslurými.  Húsinu fylgir þúsund fermetra eignarlóð.

Hér má skoða nánar

 

Borg, Egilsstöðum

Stærð: 165 fermetrar
Byggingarár: 1964
Verð: 7,5 milljónir

Hér er gott fimm herbergja hús á góðu verði, en þarfnast mikils viðhalds að utan. Vatnslagnir eru ónýtar og eru rakaskemmdir víða í íbúðinni. Ofna vantar í húsið og hitalagnir eru í ólagi. Einnig fylgir 28 fermetra bílskúr með, þó þörf séu á viðhaldi þar einnig.

Hér má skoða nánar

 

Keflavíkurgata, Hellissandi

Stærð: 153 fermetrar
Byggingarár: 1942
Verð: 6,9 milljónir

Fjögurra herbergja steinsteypt einbýlishús sem er kjallari og hæð ásamt timbur bílskúr. Húsið stendur hátt og frá því er mikið útsýni til allra átta. Kjallari er með sér inngangi og lúgu í gólfi frá efri hæð. Bílskúrinn er sagður vera í slæmu ástandi og er rafmagnstafla hússins skemmd. Innréttingar, gólfefni og innihurðar eru einnig mjög lélegar og má segja hið sama um þak, þakjárn og girðingu.

Hér má skoða nánar

 

Miðbraut, Vopnafirði

Stærð: 71 fermetri
Byggingarár: 1949
Verð: 6,5 milljónir

Þetta hús er á tveimur hæðum ásamt geymslukjallara. Burðarvirki hússins þarfnast lagfæringar og því er mælt með því að kaupendur hafi fagaðila til að skoða eignina sem er með tveimur svefnherbergjum.

Hér má skoða nánar

Sólvellir, Bakkafirði

Stærð: 99 fermetrar
Byggingarár: 1951
Verð: 5,8 milljónir

Þetta hús er á Bakkafirði og hefur verið endurbætt talsvert upp á síðkastið. Þannig var það málað að utan árið 2013, gluggi lagaður og þá var ráðist í endurbætur að innan. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu sem sagt er henta vel sem sumarhús.

Hér má skoða nánar

 

Miðvangi, Bakkafirði

Stærð: 84 fermetrar
Byggingarár: 1987
Verð: 4,5 milljónir

Hér er um að ræða ekki eiginlegt einbýlishús heldur parhúsaríbúð úr timbri. Húsið er þó skráð sem einbýli á vef Morgunblaðsins. Íbúðalánasjóður á íbúðina og eru áhugasamir kaupendur hvattir til að skoða hana með fagmönnum og mynda lagnir. Þrjú herbergi eru í húsinu.

Hér má skoða nánar

 

Tjarnarholt, Raufarhöfn

Stærð: 109 fermetrar
Byggingarár: 1976
Verð: 3 milljónir

Hér er um að ræða timburhús á Raufarhöfn sem byggt var árið 1976. Húsið er fjögurra herbergja og 110 fermetrar. Sérstaklega er tekið fram að eignin sé í mjög slæmu ástandi og þarnist töluverðra endurbóta. Komið er að viðhaldi á gluggum, gleri, útihurðum, timburklæðningu, þaki og þakkanti. Þá eru gólfefni og innréttingar léleg eða ónýt. Rakaskemmdir eru víða í eign.

Hér má skoða nánar

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki