fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Ragga nagli – „Áður en þú veist af ertu kominn á gott skrið og krúsar heilsubrautina“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 23. október 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragga Nagli er klínískur heilsusálfræðingur og einkaþjálfari. Á Facebook heldur hún úti vinsælli síðu þar sem hún birtir reglulega pistla um hreyfingu, mataræði og fleira. Í þessum fjallar hún um að hliðarspor af heilsubrautinni eru ekki endir alls.

Ein máltíð hér og þar sósuð í sukki og sætindum er bara lítið næringarprump ef aðrar máltíðir eru grænar og vænar.

Smá hliðarspor af heilsubrautinni er eins og að stoppa á rauðu ljósi.

Tíminn þar sem þú getur íhugað og spáð og spekúlerað hvað virkaði og hvað virkaði ekki.
Eða tíminn þar sem þú tekur þátt í félagslífi og nýtur lífsins lystisemda.

En ef hausinn gerir slíkt hliðarspor að dramatískum grískum harmleik áttu á hættu að hanga á þessu rauða ljósi allan daginn, eða jafnvel vikuna eða mánuðinn.

Þar til Vaka dráttarbílaþjónustan dregur þig í burtu á tjónaverkstæðið.

En hinsvegar ef þú planar hvernig þú ætlar að taka af stað aftur eftir stoppið þá nærðu árangri.

Að nota nálgunina „Ef….þá“ mun hjálpa þér

Ef ég lendi á rauðu ljósi þá ætla ég að setja í fyrsta gír og ýta á bensíngjöfina til að taka af stað aftur.

„Ef ég skúbba hnallþóru í ginið í föstudagskaffi ætla að fá mér hollt í hádeginu. „
„Ef ég kemst ekki á æfingu í dag ætla ég að gera tuttugu armbeygjur yfir tíu-fréttum.“

Það er auðvelt að selja sér þá óhjálplegu hugsun að heilsumelur sé heimsyfirráð í mataræði og hreyfingu.

Ekki missa úr eina einustu æfingu.
Ekki víkja millimeter frá hollustu í snæðingum.

Ef þú gerir það ertu lúser. Aumingi með hor. Landeyða. Sóun á súrefni.

Og getur gengið plankann. Með gapastokk. Tjargaður og fiðraður á torgum.

En að halda dampi er ekki það sama og vera fullkominn.

Þú þarft ekki að stunda glæfralegan ofsaakstur á Sæbrautinni til að halda dampi.

Þú þarft bara að keyra á löglegum hraða. Og þó þú lullir löturhægt eins og afi gamli með kaskeyti og hanska. Tíu mínútur í tvö á stýrinu. Þá ertu samt að fara í rétta átt. Áfram.
Þú ert að ná árangri.

En þó þú stoppir á leiðinni með að missa úr æfingu út af annríki, slátra kökusneið í afmæli eða gúffa pizzu í partýi þá tekurðu alltaf af stað aftur.

Það er eins og að stoppa á rauðu ljósi á laugardagsrúntinum.

Svo tekurðu af stað aftur í fyrsta gír. Það getur verið erfitt fyrstu metrana, en svo skiptirðu upp í annan gír og aftur í þriðja gír.

Og áður en þú veist af ertu kominn á gott skrið og krúsar heilsubrautina.

Facebooksíða Röggu nagla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki