Kvennafrídagurinn verður á morgun, 24. október, og í tilefni hans verður meðal annars haldinn baráttufundur á Arnarhóli. Konur eru hvattar til að leggja niður störf klukkan 14.55 en dagskrá við Arnarhól hefst klukkan 15.30.
Mynd sem almannatengillinn Örn Úlfar Sævarsson birti á Twitter í gær hefur vakið talsverða athygli en þar er mynd af útvarpsmönnum Bylgjunnar. Óhætt er að segja að karlar séu í miklum meirihluta þar og er raunar aðeins eina konu að finna á umræddri mynd, Siggu Lund sem er í loftinu um helgar.
Við myndina skrifaði Örn: „Hér labbar alla vega enginn út á Kvennafrídaginn“.
Hér labbar alla vega enginn út á Kvennafrídaginn pic.twitter.com/WazhjbH05u
— Örn Úlfar Sævarsson (@ornulfar) October 22, 2018