Allir og ömmur þeirra neyðast til þess að sinna kalli náttúrunnar af og til. Hvernig í ósköpunum er þó hægt að sinna þörfum sínum eðlilega þegar salernisaðstöður mæta þér eins og fyrirbæri úr léttri hrollvekju?
Samkvæmt hinum skrautlega Twitter-aðgangi Toilets with Threatening Auras (e. „Klósett með ógnandi áru“) hafa náðst á ljósmynd hinar furðulegustu klósettskálar. Margar hverjar þeirra eru eflaust beint stignar úr martröðum sumra.
Ert þú ekki örugglega með klósetthúmor?