Á klámsíðunni Pornhub má finna myndband af internetstjörnunni Magga Mix. Myndbandið er um mínútu langt og ber þann klámlega titil: „THICK STUD SLIDES DOWN HARD ROCK“ eða þykkur foli rennir sér niður harðan stein.
Engin veruleg nekt sést þó í myndbandinu, Maggi er einungis ber að ofan að renna sér niður vegg. „Já, sæll. Rauður á mér maginn,“ segir Maggi eftir eftir að hafa rennt sér niður vegginn á berum maganum. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan. Ljóst er að einhver gárungur hefur sett myndbandið inn á Pornhub því búið er að setja það í flokka svo sem dvergaklám, barnfóstruklám og fituklám.
Sjá einnig: Frægar íslenskar konur á stærstu klámsíðu heims
Það er ekkert einsdæmi að frægir íslendingar lendi á Pornhub. Líkt og DV hefur áður greint frá þá eru myndbönd af bæði Björk og Ásdísi Rán á síðunni. Bæði myndbönd eru þó alfarið án nektar og í tilfelli Bjarkar þá er myndbandið einungis frægt myndband frá níunda áratugnum þar sem Björk tekur í sundur sjónvarpið sitt.
https://www.facebook.com/MaggiMix/videos/gle%C3%B0ilegar-stundir-og-f%C3%B6rum-varlega/10159940099945045/