Bíóhornið er þáttur sem hóf nýlega göngu sína í DV sjónvarpi. Eins og nafnið gefur til kynna er þátturinn helgaður nýjum kvikmyndum og væntanlegum.
Nú til umfjöllunar er spennumyndin Bad Times at the El Royale frá hinum virta leikstjóra og handritshöfundi Drew Goddard. Myndin skartar fjölbreyttu og skotheldu liði leikara og hefur hlotið heilmikið umtal á síðustu vikum. Hún var afhjúpuð fyrr í haust á kvikmyndahátíðinni Fantastic Fest við stórgóðar undirtektir.
Einnig vakti myndin talsverða lukku á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í San Sebastián. Bæði gagnrýnendur og áhorfendur virðast flestir vera sammála um að hér sé frumlegur, óútreiknanlegur og þrælspennandi reyfari á ferð.
Aníta Estíva Harðardóttir fær orðið.
[videopress hENg8avk]
VILTU BOÐSMIÐA?
DV ætlar að gefa fáeinum heppnum lesendum opna miða á kvikmyndina. Það eina sem þú þarft að gera er að taka þátt með athugasemd hér að neðan.
Segðu okkur endilega hvern þú myndir draga á Bad Times at the El Royale og þú gætir verið dregin/n út eftir helgi.