fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Fyrsta skiptið – Ein eða fimm stjarna best, ekki neitt þar á milli í boði

Babl.is
Miðvikudaginn 17. október 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hver man ekki eftir fyrsta kossinum? Fyrsta deitinu? Rúnkinu? Eða kynlífinu? Það mun eflaust margt skemmtilegt (eða óskemmtilegt) rifjast upp fyrir áhorfendum á sýningu leikritsins Fyrsta skiptið, en eins og nafnið gefur til kynna þá fjallar sýningin um fyrstu skiptin og allt það vandræðalega sem fylgir með þeim. Sýningin var frumsýnd síðastliðinn sunnudag við glimrandi undirtektir!

,,Fyrsta skiptið er ekki beint þessi Hollywood sena. Það er mjög óraunhæft að búast við að allt muni ganga fullkomlega upp í fyrsta sinn sem þú gerir eitthvað,” segir í viðtali við aðstandendur sýningarinnar sem birtist á Babl.is.

Leikararnir í sýningunni eru þau Arnór Björnsson, Berglind Alda Ástþórsdóttir, Inga Steinunn Henningsdóttir, Mikael Emil Kaaber og Óli Gunnar Gunnarsson. Leikstjóri sýningarinnar er Björk Jakobsdóttir.

Leikararnir hafa allir unnið hörðum höndum að sýningunni í allt sumar frá því þau útskrifuðust úr menntaskóla.

Í sýningunni eru þrjú frumsamin lög sem bera titlana Fyrsta skiptið, Þú veist þú ert hrifinn og Sambandsslit. Lögin eru eftir Mikael, Óla og Hall Ingólfs sem pródúsaði lögin.

Mikael og Óli hafa áður samið tónlist saman, og Berglind og Inga hafa mikið flippað saman í gegnum tíðina.

,,Við vorum alltaf með einhver atriði í grunnskóla. Oft mættar upp á svið saman með frumsamin lög um kennara og nemendur.” Fyrir það fengu stelpurnar verðlaun frá skólastjóranum. ,,Það voru semsagt verðlaun fyrir að vera skrýtnar.”

,,Við erum að leika okkur sjálf í sýningunni, og  hoppum svo af og til í leiknar senur. Leikritið er byggt á sögum frá okkur og góðum vinum eða sögur sem við höfum heyrt.” Í sýningunni má til dæmis sjá fyrsta skiptið sem Mikael losaði um brjóstahaldara sem var víst mjög stressandi. ,,Það er mjög hratt flæði í sýningunni. Við hoppum frá því að vera að spjalla við áhorfendur og yfir í fólk í miðri senu. Við erum líka með abstrakt senur eins og að túlka sleik í dansi eða kynlíf í íþróttum.”

Kynlíf í íþróttum?

,,Þessar sögur fæða svo af sér leikrænar senur, það eru ekkert mjög margar senur sem eru beinar reynslusögur, þetta er miklu frekar við að taka reynslusögurnar fyrir og gera grín að þeim.

Þetta á fyrst og fremst að vera fyndið. Við viljum ekki að fólk haldi að það sé að fara að sitja í tveggja klukkutíma jafningjafræðslu. Þó jafningjafræðslan sé náttúrulega mjög næs.”

Björk leikstjóri segir að hugmyndin hafi komið upp þegar hún safnaði saman krökkunum og bað þau um að byrja að skrifa. ,,Ég sagði þeim að skrifa bara eitthvað og ekki vera að hugsa textann sem leikrit. Þá komu fram senur sem fjölluðu um þetta, og okkur fannst geggjað að hafa þetta sem heildarkonsept.”

Þegar leikararnir voru fyrst að opna sig um sín fyrstu skipti þá var víst ekki slegist um að fá að byrja. ,,Við vorum alveg smá hikandi fyrst. Það var allavega ekki jafn auðvelt og það er núna.”

En hvað ef ,,fyrsta skiptið” mætir á sýninguna?

,,Fyrsti kossinn hennar Beggu er að vinna í sýningunni. Hann er grafískur klippari. En hann hefur alveg húmor fyrir þessu.” Fyrsti koss Óla mætti á frumsýninguna. ,,Það verður bara gaman.”

Fyrsta skiptið sem Arnór stundaði kynlíf er tekið fyrir í sýningunni ,,en ég er ennþá með þeirri stelpu þannig ég ætla rétt að vona að hún mæti á sýninguna. Svo er litla frænka mín að fara að mæta á sýninguna og er eitthvað smá stressuð, en þetta verður bara gleði.”

Mikael segir að hann sé hinsvegar ekki með neinn út í sal sem hann þarf að hafa áhyggjur af. ,,Við erum samt auðvitað öll með ömmur og afa að horfa en það eru öðruvísi áhyggjur. Við gerum bara brandara úr því, og segjum alltaf ,,hæ amma” þegar við erum nýbúin að gera eitthvað skrýtið og ógeðslegt.”

Það erfiða við að setja upp grínsýningu er að vita ekki hvort hún sé fyndin fyrr en á aðalæfingunni. ,,Maður vill ekki jinxa eins og Mikki gerir alltaf með því að segja að við þurfum að taka góða pásu eftir einhvern brandara því það verður hlegið svo mikið. Síðan er Begga alltaf fljót að bæta við ,,já eða það verður ekkert hlegið”. Það væri leiðinlegt að fatta daginn fyrir frumsýningu að sýningin er ekkert fyndin. Allir yrðu bara ógeðslega móðgaðir og salurinn fullur af reiðum ömmum.”

,,Maður getur ekki gert grín nema finnast það sjálfum mjög fyndið, og vonast bara til að einhver annar í salnum hafi sama smekk,” segir Björk sem hefur engar áhyggjur af þessu.

Hver eru verstu viðbrögðin sem þið gætuð ímyndað ykkur?

,,Það væri verst ef við fengjum tvær eða þrjár stjörnur. Annaðhvort verðum við að fá fimm eða fjórar stjörnur, eða þá eina stjörnu. Tvær eða þrjár stjörnur þýðir að sýningin var bara ekkert sérstök. Við verðum annaðhvort að slá í gegn eða valda öllum það miklum vonbrigðum að það væri áhugavert að sjá sýninguna.” Með einni stjörnu er líka hægt að þykjast hafa bara verið að gera tilraun og vera sjúklega á undan sinni samtíð.

,,Það er líka óþolandi að vera nýbúinn að frumsýna eitthvað, og einhver ættingi eða vinur þarf að horfa í augun á þér og ljúga um hvað sýningin var frábær,” bætir Mikael við.

,,Maður leggur alltaf allt undir í svona sýningu,” segir Björk. ,,Á bak við eina kvöldstund hjá áhorfendum liggur blóð sviti og tár hjá þeim sem gerðu sýninguna.” Allt lagt að veði fyrir eitthvað sem var kannski ,,bara ágætt” fyrir einhverjum út í sal.

Hvort sem þú ætlar að hlægja eða móðgast þá er hægt að kaupa miða á sýninguna hér, en sýninguna má sjá í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar