fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Stórstjarna norskra barnabókmennta kemur til Íslands: Útgáfuhóf á þriðjudag

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 1. október 2018 16:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Útgáfuhóf vegna barnabókarinnar Markmaðurinn og hafið verður haldið í Norræna húsinu á þriðjudag kl. 16 til 18. Höfundurinn er hin norska Maria Parr, sem er fædd árið 1981 en fyrsta bók hennar, Vöffluhjarta, kom út árið 2005. Hún sló síðan í gegn með bókinni Tonje Glimmerdal árið 2009 og fékk fjölda verðlauna fyrir hana.

Bækur Mariu Parr hafa verið þýddar á fjölda tungumála og hún hefur unnið til verðlauna í mörgum löndum. Mariu Parr hefur verið líkt við bæði Jóhönnu Spyri, höfund Heiðubókanna, og Astrid Lindgren. Maria Parr er frá Diskå í Vanylven. Hún er með meistaragráðu í norrænum bókmenntum frá Háskólanum í Bergen og er menntaður kennari.

Fyrr í þessum mánuði fékk Maria Parr bókmenntaverðlaun samtaka norskra skólabókasafna 2018. Nýjasta bók Mariu Parr, Markmaðurinn og hafið, sem kom út í Noregi haustið 2017, hlaut Brageverðlaunin 2017.

Sem fyrr segir verður bókin kynnt í Norræna húsinu á þriðjudag frá kl. 16 og höfundur verður viðstaddur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“