fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Leoncie: „Við hjónin erum búin að fá nóg af ykkar heilabiluðu götudómstólum hér á landi“

Fókus
Mánudaginn 24. september 2018 12:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leoncie hefur haft sigur í stríði við Ella Grill og félaga hjá Shades of Reykjavik. Búið er að taka lagið „Enginn þríkantur hér“ af Youtube. Þau fluttu eftirminnilega saman lagið „Enginn þríkantur hér“ árið 2015 en síðan átti eftir að slettast uppá vinskapinn.

Leoncie er ósátt við að Elli og Shades of Reykjavík hafi eignað sér lagið og dreift því á Youtube og víðar og segir Leoncie að hún og eiginmaður hennar eigi höfundarréttinn að laginu.

Lagið „Enginn þríkantur hér“ er lag sem Leoncie gaf út árið 2008 og flutti í breyttum búningi með Ella árið 2015. Fékk sú útgáfa mikla hlustun og athygli en Leoncie segist ekki hafa fengið neinar greiðslur fyrir.

„Þjófnaður um hábjartan dag,“ segir Leoncie í Facebook-færslu 8. ágúst síðastliðinn. Þá kallar hún rapphljómsveitina „hæfileikalausa“ og „vesalinga“ og sjálfa sig „indverska snillinginn Leoncie.“

Um helgina greindi svo Leoncie frá því að búið væri að taka niður lagið á Youtube vegna brota á höfundaréttarlögum. Í samtali við DV segir Leoncie að „íslenskir hrægammar í tónlistinni“ hafi haft af henni fjármuni með þessu. En Leoncie fagnar nú að búið sé að fjarlægja lagið á Youtube.

„Það var stolið frá mér laginu með því að selja höfundaréttarvarið efni á Youtube og fleiri stöðum,“ segir Leoncie en kveður svo fastara að orði. „Við hjónin erum hundleið að hæfileikalausir tónlistarfólk hérlendis eru sífellt að nota okkar höfundarréttarvarin Lög og borga ekki Stefgjald, og stinga peningum í sinn eigin vasa,“ segir indverska prinsessan og bætir við: „Við hjónin og fjölskyldan mín erum líka búin að fá nóg af ykkar heilabiluðu götudómstólum hér á landi. Það er meira um Copyright Theft á facebook síðunni minni.“

Þrátt fyrir allt er hin hæfileikaríka indverska prinsessa sáttari við lífið og tilveruna eftir að þessi niðurstaða varð ljós. Segir hún að réttlætið bragðist vel og Guð sé frábær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“