„Það er gríðarlega vinna að ferðast á framandi slóðir með ung börn en við njótum hverrar einustu stundar í botn og förum á okkar hraða,“ segir Eva Dögg Jafetsdóttir. Hún og eiginkona hennar, Álfheiður Björk Sæberg Heimisdóttir, eru staddar á ferðalagi í Japan þessa dagana. Þær kalla sig Worldtravelmoms (Heimsreisumömmurnar) og bera svo sannarlega nafn með réttu því í sumar sögðu þær upp störfum sínum og flugu á vit ævintýranna með börnum sínum tveimur, Sindra og Söru, sem eru fjögurra og tveggja ára gömul. „Við vorum búnar að ganga með þennan draum í maganum lengi og ákváðum að kýla á það áður en Sindri byrjaði í barnaskóla,“ segir Eva Dögg. Að hennar sögn hefur ferðin verið frábær hingað til en einnig koma stundir sem reyna verulega á.
Ferðin hófst í lok júní í sumar og gæti staðið í allt að ár. „Við sögðum upp í vinnunni, leigðum út íbúðina og lögðum af stað. Við keyptum bara miða eina leið og höfum því ekki ákveðið hvenær við komum heim eða hvert ferðinni er nákvæmlega heitið. Það fer eftir okkur, krökkunum og fjárhagnum,“ segir Eva Dögg.
Fyrsti áfangastaður var Taíland en þangað höfðu Eva og Álfheiður farið í brúðkaupsferð árið 2011. „Við elskuðum landið, matinn og menninguna og vildum því gjarnan skoða landið nánar. Okkur fannst líka þægilegt að hefja ferðina á stað sem við höfðum reynslu af, sérstaklega þar sem við erum með ung börn með okkur. Þegar við fórum að skoða fleiri áfangastaði í Asíu þá urðum við sífellt spenntari enda ótrúlega margir staðir sem vert er að heimsækja. Það skemmir ekki heldur fyrir að Asía er frekar ódýr heimsálfa og því langaði okkur að eyða drjúgum tíma þar,“ segir Eva Dögg.
Að loknum ljúfum mánuði í Taílandi var förinni heitið til Víetnam og síðan til Japan. Örlögin höguðu því þannig að flug þeirra til Japan var fellt niður vegna óveðurs og þá stukku þær á hentugt flug til Suður-Kóreu í staðinn. „Þetta er lítið skipulagt hjá okkur og því getum við gripið gæsina og gripið skemmtileg tækifæri,“ segir Eva Dögg. Fram undan er svo heimsókn til Filippseyja, Singapore, Kambódíu og Indónesíu. „Við vorum síðan búnar að ákveða að eyða jólunum og áramótunum á Balí. Það er enn á dagskrá en við fylgjumst vel með stöðunni varðandi náttúruhamfarirnar sem riðu yfir á dögunum.“
Hvað tekur við eftir áramótin er óráðið og segjast Eva og Álfheiður ætla njóta þess að hafa dagskrána sveigjanlega. Álfheiður fór sem skiptinemi til Argentínu á árum áður og því er það á stefnuskránni að heimsækja fjölskylduna sem hún dvaldi hjá á sínum tíma. Fyrir utan að njóta alls þess sem áfangastaðirnir hafa upp á að bjóða fyrir ferðamenn hafa Eva og Álfheiður lagt ríka áherslu á að heimsækja leikskóla og ýmis dagvistunarúrræði fyrir börn í hverju landi fyrir sig. „Við erum báðar menntaðir þroskaþjálfar og höfum mikla reynslu af því að vinna með börnum. Okkur fannst því spennandi að fá innsýn í mismunandi kennsluumhverfi. Okkur finnst jafnframt spennandi að kynna börnunum okkar mismunandi aðstæður annarra og leyfa þeim að umgangast önnur börn í gegnum leik. Við förum líka markvisst á leiksvæði og leikvelli í þeim tilgangi að gefa börnunum félagslega útrás með jafnöldrum og kynna fjölmenninguna fyrir þeim,“ segir Eva Dögg.
Hún segist hiklaust geta mælt með því að ferðast um Asíu með ung börn. „Við vissum svo sannarlega að það yrði áskorun að ferðast með tvö ung börn. Það er brjáluð vinna að vera með svona lítil kríli en þvílíkur lærdómur fyrir okkur öll og yndisleg samvera. Þau koma okkur stanslaust á óvart en auðvitað er dagamunur á okkur öllum og þá lærum við bara að vinna með það. Það er ótrúlegt hvað þau þurfa að þola mikið áreiti frá fólkinu hérna úti. Það er stanslaust verið að snerta þau, klípa, stara og taka þau upp svo ekki sé talað um endalausar myndatökur en auðvitað allt gert með góðum huga. Þau hafa verið ótrúlega umburðarlynd og viljug en það hafa vissulega komið stundir þar sem þeirra þolmörkum er misboðið og þau draga sig til baka. Með hverjum deginum eflast þau og læra að njóta og við nýtum hvert tækifæri til lærdóms því það er ótrúleg lífsreynsla að halda svona út í heim í allt aðra menningu og venjur,“ segir Eva Dögg
Eitt af því sem stungið hefur í augun er ógrynni af rusli á víðavangi. Það fer sérstaklega fyrir brjóstið á hinum fjögurra ára gamla Sindra. „Þetta hefur skapað miklar umræður og eftirtekt hjá okkur öllum. Við tókum því ákvörðun sem fjölskylda að við viljum leggja okkar af mörkum. Við getum að sjálfsögðu ekki breytt heiminum en við getum gert eitthvað. Þess vegna ákváðum við að vera alltaf með poka í töskunni og tínum rusl reglulega. Gaman að segja frá því að þegar við vorum í Hue-Vietnam að tína í einn ruslapokann þá rölti einn heimamaður til okkar með eigin poka og byrjaði að tína með okkur,“ segir Eva Dögg.
Hægt er að fylgjast með ferðalagi fjölskyldunnar á Snapchat og öðrum samfélagsmiðlum eins og Instagram, Facebook og sérstakri bloggsíðu þeirra. Notendanafnið er worldtravelmoms.