fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Áralangur draumur Jóhanns varð að veruleika – Af gjörgæslu í félagsskap illmenna

Tómas Valgeirsson
Sunnudaginn 9. september 2018 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í alheimssamtökunum 501st Legion koma saman gallharðir aðdáendur Stjörnustríðs og spóka sig í búningum sem eru nákvæmar eftirlíkingar þeirra sem sjást í kvikmyndunum. Aftur á móti gengur þessi tiltekna hersveit sérstaklega út á að halda upp á liðsheild og teymi hinna sígildu skúrka sem tilheyra þessum ævintýraheimi. Hvers vegna? Einfaldlega vegna þess að vondu karlarnir eru yfirleitt svalari.

Jóhann Waage, grafískur hönnuður og starfsmaður hjá Fréttablaðinu, tekur fyllilega undir þessa fullyrðingu og segir langþráðan draum sinn hafa orðið að veruleika; að gerast meðlimur þessarar hersveitar og leyfa nördahjartanu að njóta sín til fulls. Upphafið var hins vegar erfið lífsreynsla sem tæmdi hugann og opnaði margar dyr.
„Þessa ákvörðun tók ég þegar ég var á gjörgæslu. Ég var nýbúinn í heilaaðgerð eftir að hafa fengið bæði heilablóðfall og blóðtappa. Ég lá með símann, hafði ekkert að gera og fjóra auða veggi í kringum mig. Þá áttaði ég mig á því að þetta væri raunsær draumur til þess að eltast við,“ segir Jóhann.

„Ég var búinn að hugsa þetta lengi og mig langaði alltaf til þess að verða hluti af 501st Legion en hafði aldrei látið verða af því fyrr en þá.“

Ælupestin sem aldrei varð

Jóhann er fjölskyldumaður, þriggja barna faðir og í góðri vinnu þar sem hefur ríkt mikið álag. Þetta álag reyndist þó aldrei vera Jóhanni ofviða fyrr en áhrif þess á líkamann fóru að segja til sín með krafti og óbærilegum sársauka.
„Ég fann aldrei fyrir miklu stressi sjálfur, en læknarnir sögðu að ég hefði verið með bullandi háan blóðþrýsting í mörg ár. Ég fann ekkert fyrir því,“ segir hann.

„Kannski hafði þetta álag verið að gerjast í mér í mörg ár. Svo sat ég heima 1. nóvember í fyrra og fann fyrir tilfinningu eins og ég hefði verið skotinn af færi með riffli. Þetta var versti sársauki sem ég hef fundið á ævi minni. Sársaukinn fór alveg niður hausinn og hálsinn herptist allur saman.“

Þegar Jóhann og eiginkona hans hringdu á sjúkrabíl komu sjúkraliðar en afskrifuðu verkinn sem einfalda ælupest áður en þeir héldu aftur sína leið. „Skömmu eftir þetta lá ég heima með gríðarlegar höfuðkvalir. Þá sagði konan að þetta hlyti að vera eitthvað meira. Þá hringdi ég eftir sjúkrabíl aftur og fór í aðgerð innan sólarhrings. Þegar ég kom í aðgerðina kom í ljós að það voru einnig tveir blóðtappar sem þurfti að leysa upp.“

Jóhann segir það hafa skipt öllu að eiga góða að eftir heilablóðfallið og blóðtappana, bæði fjölskyldu og vinnufélaga. Verkurinn og eftir að hafa jafnað sig eftir aðgerðina leiddi þó til þess að Jóhann uppgötvaði að lífið væri núna og eftir það var ekki aftur snúið. „Þetta varð til þess að ég ákvað að láta áralangan draum um að ganga til liðs við 501st Legion rætast.“

Hersveitir frá öllum heimshornum sameinast á hinum alþjóðlega Star Wars-degi, þann fjórða maí.

Með of stóran haus

501st Legion var fyrst stofnuð í Bandaríkjunum árið 1997, á tuttugu ára afmæli upprunalegu Stjörnustríðsmyndarinnar. Stofnandi íslenska félagsins er Hilmir Kolbeinsson og hefur félagið lagt mikið upp úr góðri samveru, með það að markmiði að meðlimum líði vel í eigin skinni og ekki síður að gleðja börnin. Félagið hefur heimsótt Barnaspítalann og tekið þátt í ýmsum viðburðum og skrúðgöngum.

Ef færri en 25 einstaklingar eru í 501. hersveitinni kallast félagið Outpost, eða varðarstöð. Ef fleiri eru komnir í teymið er deildin orðin að Garrison (e. virki), en Jóhanni þykir ekki líklegt að hópurinn nái að stækka svo mikð á komandi árum. Þó megi alltaf vona.

„Ég kom mér í samband við Hilmi og sagði honum að mig langaði að vera með og fá mér búning,“ segir Jóhann. „Þetta gengur þannig fyrir sig ef þú ætlar að ganga til liðs við deildina. Þá byrjarðu á því að kynnast og ræða við þá sem eru í sveitinni fyrir. Ég þekkti nokkra frá fyrri tíð. Þeir voru bara þrír í deildinni á tímabili, svo urðu þeir fjórir og ég kom inn sá fimmti. Bráðum verðum við sex og vonumst til þess að það fjölgi enn frekar í hópnum.

Þegar maður er kominn inn getur maður reynt að átta sig á hvaða búning maður vill hafa. Ég er svonefndur „Gunner“ eða stórskotaliði,“ segir Jóhann. „Ég fór þá í Gunner-grúppur. Þá kynnist maður heilu samfélagi úti í heimi þar sem menn aðstoða mann í að koma sér upp. Í svona grúppum eru einnig hönnuðir og búningasmiðir. Það er rosalegt ferli að setja saman búningana og fá þá alla, en það er einnig spennandi.“

Góður mórall hjá vondu körlunum

Það eru strangar kröfur gerðar til þeirra sem vilja gerast hluti af hersveitinni, til að mynda er ekki hægt að kaupa hvaða Star Wars-búning sem er úr búð. Búningurinn þarf að vera samþykktur af félaginu sem fer eftir ákveðnum gæða- og samsetningarkröfum.

„Minn draumabúningur var alltaf Keisaravörður fyrir Palpatine, en svo komst ég að því að ég er með of stóran haus fyrir þann hjálm. Ég ákvað í staðinn að taka „Gunnerinn,“ því mér fannst hann svo skemmtilega öðruvísi og ég vissi að hjálmurinn væri nógu víður á höfuðið.“

Síðan þá hefur Jóhann pantað sér fleiri búninga og segir hann að áhugamálið kosti vissulega sitt, en sé ávallt þess virði. „Félagið snýst um alls konar hluti. Þú ert hluti af góðri heild, allir vilja hjálpast að, vináttan er mikil og það myndast skemmtileg fjölskyldutengsl í þessu.“

Jóhann verður staddur með félögum hersveitarinnar á ráðstefnunni Midgard 2018 en þar verður liðsheildin með bás til að spjalla við hópa og sýna bestu hliðar sínar. Jóhann er gríðarlega spenntur fyrir ráðstefnunni og segist mikið hlakka til þess að taka í spaðann á Brian Muir, manninum sem bjó til búningana fyrir meðal annars Svarthöfða og stormsveitarmennina.

Næsti búningur Jóhanns verður svonefndur Snowtrooper, sem Jóhann segir að eigi eftir að svínvirka þegar kemur að íslenska snjónum.
Jóhann í gervi stórskotamanns á Helstirninu.

Hugmyndafræðin og sköpunargleðin

„Ég er búinn að vera Star Wars-aðdáandi síðan ég var smákrakki og sá The Empire Strikes Back í gamla bíóinu í Borgarnesi.

Jóhann segist hafa ýmislegt að setja út á nýjar kvikmyndir seríunnar en hefur undanfarið tekið sjálfstæðu sögunum – á borð við Rogue One og Solo – meira fagnandi, enda er heimurinn þar stækkaður og meira gert úr möguleikunum en að endurvinna aðrar formúlur. En Jóhann er sammála blaðamanni um það að Star Wars-fyrirbærið sjálft er miklu stærra og snýst um svo mikið meira en hægt er að meta í gæðum hverrar kvikmyndar.

„Það er eitthvað við hugmyndafræðina, þennan óendanlega heim og möguleika sem þetta fyrirbæri býður upp á, sem talar svo til mín. Hvort sem það er líf á öðrum hnöttum, ævintýraþráin, hugmyndaflugið, þetta er allt saman í Star Wars. Það er líka dýrmætt að upplifa þennan heim í gegnum börnin mín og fylgjast með þeim límast við hann, eins og maður sjálfur gerði. En síðan má heldur ekki horfa framhjá því að vondu karlarnir eru alltaf í flottustu búningunum,“ segir Jóhann. „Jú, Jedi-riddararnir eru flottir en illmennin eru einfaldlega svo töff.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt