Árið 1926 lagði að bryggju í Reykjavík skemmtiferðaskipið Carinthia frá Liverpool. Farþegarnir voru 350 bandarískir borgarar á siglingu um norðurslóðir. Vefritið Lemúrinn sagði frá því að með skipinu hafi verið frægur ferðamaður, Burton Holmes, en hann er talinn brautryðjandi á sviði ferðakvikmynda og ferðaðist um heim allan á millistríðsárunum. Ljósmyndir hans og kvikmyndir þykja hvarvetna ómetanlegar heimildir.
Íslensk blöð fjölluðu talsvert um veru Burtons og sögðu frá því að hann hefði kvikmyndað í höfninni, tekið upp söngflokka, gangandi vegfarendur en hrifnastur hafi hann verið af íslenskum glímuköppum. Hann fékk fjóra bestu glímukappa landsins um borð í skipið og glímdu þeir eftir fegurstu reglum listarinnar.
Íslendingum var boðið um borð í skipið og skemmtu ferðamönnum með söng, dansi, hljóðfæraslætti og glímusýningum. Í þakklætisskyni héldu ferðamennirnir dansleik um borð. Vafalaust hefur ekki skort veitingar það kvöldið og ef líkum lætur hefur mönnum verið skenkt í glös þeirri veig, sem Einar Benediktsson, skáld, kallar um þetta leyti „ósvikið kláravín.