fbpx
Miðvikudagur 17.apríl 2024
Fókus

Ásdís Rán um frelsun geirvörtunnar: „Mér var nú heldur brugðið þegar landinn tók upp á þessu“

Tómas Valgeirsson
Mánudaginn 27. ágúst 2018 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir um 20 árum varð íslenskt þema fyrir valinu í bandaríska Playboy-tímaritinu með forsíðufyrirsögninni „The Hot Hot Women of Iceland.“ Þar var fjölmörgum stúlkum héðan og þaðan af landinu boðið að sitja fyrir hjá þekktasta klámblaði veraldar. Á hinu litlu Íslandi flykktust íslenskir karlmenn til að festa kaup á umtalaðasta klámblaði ársins. Á þessum tíma voru þrettán ungar konur sem tóku umdeilda ákvörðun.

Þetta var á þeim tíma sem strippbúllur spruttu upp eins og gorkúlur, Davíð Þór Jónsson leikstýrði fólki í að stunda kynlíf fyrir myndatökur í Bleikt og blátt sem seldist sem aldrei fyrr. Það má segja að kynlífsæði hafi ríkt hér á landi á þessum árum. Konur tóku þátt í fegurðarsamkeppnum með stolti eða komu fram naktar og lýstu sumar yfir að þetta opnaði hinar ýmsu dyr. Þær vissu reyndar ekki þá að þær ættu eftir að iðrast alls þessa. Og niðurstaðan er einfaldlega sú, eftir að DV fór að kanna málið, að konur ættu aldrei að taka þátt í fegurðarsamkeppnum eða sitja fyrir naktar þegar þær eru ungar. Eftir tíu ár eða tuttugu, þegar fjölmiðlar vilja einn daginn rifja upp þær sögur munu langflestar konurnar ekki vilja tjá sig. Þær skammast sín fyrir þennan tíma í lífi sínu. Þegar DV hafði samband við konurnar þótti það mikið feimnismál hjá flestum að rifja upp þessa örlagaríku ákvörðun. Sumar vildu hreinlega ekkert tjá sig um myndatökurnar og vildu að ljósmyndirnar heyrðu fortíðinni til.

Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir er hins vegar ekki þekkt fyrir spéhræðslu. Ásdís sat fyrir í búlgarska Playboy árið 2010 við jákvæðar undirtektir og gríðarlegt umtal á því ári.

„Skemmtilegar minningar sem ekki á að skammast sín fyrir“

Ásdís segir í samtali við DV að hún hafi ekki orðið mikið vör við framan nefnd feimnismál í gegnum tíðina, hvorki varðandi nektarmyndatökur né fegurðartitla, nema þá stöku sinnum. „Það er þá út af þessari kvenréttindastefnu síðustu árin – að konur eru hvattar til þess að leita ekki eftir viðurkenningu fyrir fegurð eða líkama,“ segir Ásdís.

„Slík herferð hefur haft mikil áhrif á konur á Íslandi og kannski þær sem eiga titla verða hálf kjánalegar í kjölfarið og þora ekki að vera stoltar af þeim. Það er náttúrlega bara bull að láta þetta hafa áhrif á sig ef þú hefur unnið fegurðarkeppnir. Þessu fylgir mikil vinna, lífsreynsla og skemmtilegar minningar sem ekki á að skammast sín fyrir. Þetta verður væntanlega alltaf umdeilt og bókað að ekki allir verði jafn hrifnir, en það þarf ekki að horfa á þetta með neikvæðum augum.“

Ásdís ræðir Free the Nipple-byltinguna árið 2016 í beinu framhaldi á umræðunni um þessi feimnismál. „Mér var nú heldur brugðið þegar landinn tók upp á þessu. Eins og ekkert væri eðlilegra en að ganga um bæinn á brjóstunum,“ segir hún.

„Mér þykir furðulegt að sjá stelpur sem fussuðu yfir því að ég væri að pósa fyrir Playboy fyrir fullt af peningum, vera fyrstar til að rífa sig úr að ofan þegar tækifærið kom. Ég veit ekki hvernig á að dæma þetta, en ég held að konur ættu bara að gera það sem þær vilja og láta sér líða vel með það. Hvort sem það er að ganga niður Skólavörðustíginn á brjóstunum, pósa fyrir ljósmyndara eða bara halda sig heima í fötunum.“

Þetta er brot úr lengra viðtali við Ásdísi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 2 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“