Gísli starfar sem verkefna- og vörustjóri skýjalausna hjá Advania en Bryndís Gyða er í laganámi í Háskólanum í Reykjavík.
Bryndís er afburðanemandi og hefur í þrígang verið veitt viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur. Bryndís er með efnilegri nemendum sem hafa stundað nám í lagadeildinni og mun án efa láta mikið að sér kveða þegar hún útskrifast.
Bryndís vakti fyrst athygli fyrir að sitja fyrir, seinna stofnaði hún, ásamt Kristrúnu Ösp Barkardóttur og Kiddu Svarfdal, kvennavefinn hun.is.
Náði sá vefur strax miklu flugi en Bryndís sagði skilið við vefinn og minna fer fyrir honum í dag. Bryndís var áberandi í íslenskum fjölmiðlum og var vinsæll pistlahöfundur en hefur haldið sig til hlés síðustu ár og einbeitt sér að náminu.
Húsið sem Bryndís og Gísli festu kaup á er í fallegri götu sem árið 1998 var kosin sú fallegasta í Reykjavík. Húsið stendur skammt frá Ríkisútvarpinu og er um 300 fermetrar. Á neðri hæðinni eru þrjú herbergi, stórt rými og baðherbergi.
Á efri hæðinni er eldhús, rúmgóð stofa með kamínu, borðstofa, baðherbergi, hjónaherbergi og tvö minni herbergi. Bílskúrinn er tvöfaldur. Úti er stór sólpallur, garður og garðhús.
Samkvæmt Procura er húsið metið 113 milljónir króna. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og byggt árið 1974. Frá húsinu er fallegt útsýni.