fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Þorsteinn upplifði kynferðislega áreitni af hendi lögreglu: „Þetta eyðilagði mig“

Ari Brynjólfsson
Laugardaginn 21. apríl 2018 11:00

Eyðilagður Þorsteinn Andri Jóhannesson stígur nú fram og segir opinberlega í fyrsta skipti hvað kom fyrir hann. Mynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er mjög erfitt að tala um þetta. Það er búið að taka mig mörg ár að viðurkenna þetta og vinna úr þessu. Ég sagði engum frá þessu, ég gróf þetta svo djúpt,“ segir Þorsteinn Andri Jóhannesson, 29 ára verkamaður, í samtali við DV. Þegar hann var 16 ára var hann sakaður um glæp og handtekinn af lögreglunni. Hann segir að það sem hafi komið í kjölfarið hafi nánast eyðilagt líf sitt. Eftir að hafa byggt upp þor til að viðurkenna það sem gerðist þá stígur hann nú fram í fyrsta skipti opinberlega.

Hvað gerðist 24. október 2006?

„Ég var sextán ára, ekki í neinu rugli. Ég var að vinna hjá Fjölsmiðjunni og var lánsstarfsmaður hjá Góða hirðinum. Þegar ég er búinn að vera þar í stuttan tíma, rúmlega þrjá mánuði, þá fá þeir annan starfsmann frá Fjölsmiðjunni vegna álags.“ Þann starfsmann köllum við Geira.

„Þegar Geiri er búinn að vinna þarna í viku þá er ég kallaður inn á skrifstofu og spurður hvað ég sé búinn að vera að gera, þetta var létt spjall við verslunarstjórann rétt eftir að ég var búinn í hádegismat. Þá var mér tilkynnt það að lögreglan sé komin til að sækja mig og Geira.“

„Starfsmaður kom að Geira inni á skrifstofu verslunarstjórans í hádeginu og séð eitthvað grunsamlegt. Hann sagðist vera að leita að mér, en það var augljóst að hann var í peningaskápnum að stela úr uppgjörinu. Maðurinn sem kom að honum hringdi í lögregluna og tilkynnti verslunarstjóranum.“

„Geiri er handtekinn, ég er líka tekinn þótt ég sé ekki settur í járn. Það er farið með okkur niður á Hverfisgötu hvorn í sínum bílnum, ég fer í ómerktum bíl með tveimur óeinkennisklæddum lögreglumönnum. Þeir taka mig inn á skrifstofu þar sem þeir yfirheyra mig. Ég er sextán ára og veit ekki hvaða rétt ég hef, ég vissi ekki að ég hefði rétt á að hafa foreldri viðstatt, fulltrúa Barnaverndar eða lögfræðing.“

Hlýddi af ótta við viðbrögð lögreglumannanna

Með áfallastreituröskun Þorsteinn segir að hann fái kvíðakast í hvert skipti sem hann sjái lögreglufólk. Mynd: DV/Hanna

Þorsteinn fór svo ásamt lögreglumönnunum tveimur í búningsklefa á lögreglustöðinni á Hverfisgötu. „Eftir að þeir eru búnir að yfirheyra mig fara þeir með mig inn í búningsklefa. Klefi sem minnir helst á lítið notaðan sveitasundlaugarklefa. Þeir segja mér að afklæðast. Ég spyr af hverju. Þeir segjast þurfa að leita að þýfi. Ég neita því, skil ekki ástæðuna. Tek það fram að ég var ekki með stæla við þá, ég hafði ekki gert neitt rangt og var tilbúinn að hjálpa þeim, mig langaði bara ekki að fara úr fötunum. Þá hóta þeir að ef ég fari ekki úr fötunum sjálfur þá verði ég annaðhvort bundinn niður eða haldið niðri á meðan aðrir lögreglumenn afklæði mig.“

Hann hlýddi af ótta við viðbrögð lögreglumannanna tveggja. „Ég vil ekki að mér sé haldið niðri og geri því það sem þeir vilja. Ég stend þarna nakinn. Svo er mér sagt að halda uppi pung til að þeir geti séð á milli pungs og rass. Ég er látinn snúa mér í hringi, beygja mig fram og glenna mig. Þeir vissu það að því sem var stolið var 80 þúsund krónur í reiðufé. Ég er og var grannur, ég gat ekki verið að fela seðlabúnt á mér. Þetta var bara valdafíkn.“

Ískalt í einangrun

„Ég fæ svo að klæða mig, þá fara þeir með mig í einangrun. Ég kemst síðan að því að það var brot á vinnureglum því það var ekki búið að tala við móður mína um það, þeir hringdu í hana og sögðu að það ætti að fara með mig niður á stöð. Ekkert um að ég væri grunaður um þjófnað, að ég ætti að afklæðast og vera svo settur í einangrun.“

Hvernig var dvölin í einangruninni?

„Kalt. Það var ískalt þarna inni. Ég fékk ekki að fara á klósettið, ég átti að pissa í holræsið á miðju gólfinu. Ég fékk ekki vatnsglas, ekki teppi. Þarna er ég sextán ára saklaus, þeir vissu að ég væri líklegast saklaus.“

Samkvæmt lögregluskýrslunni voru þeir Þorsteinn og Geiri handteknir kl. 12.35 þann 24. október 2006. Þorsteinn segir lögregluskýrsluna falsaða, en í skýrslunni segir að yfirheyrslur yfir honum og Geira hafi ekki byrjað fyrr en eftir kl. 16. „Tímarnir eru rangir. Þeir segja í skýrslunni að hann hafi játað um hálf fimmleytið. Það er ekki rétt. Það er farið með okkur á lögreglustöð um tólfleytið. Ég er settur inn í einangrun kl. 13. Kl. 15 játar Geiri að hafa stolið peningunum og að ég hafi ekki komið nálægt því. Mér er ekki sleppt út úr einangrun fyrr en kl. 17. Þá var tekið við mig annað viðtal, löglegt viðtal með mömmu minni og stjúppabba viðstöddum. Þeir sögðu mömmu að ég væri saklaus en sögðu henni ekkert um hvernig þeir meðhöndluðu mig.“

„Þetta eyðilagði mig“

„Ég vissi ekkert um réttindi mín á þessum tíma, ég treysti því að lögreglan ynni vinnuna sína samkvæmt lögum og reglum. Mamma vissi heldur ekki hver réttindi mín væru. Maður á að geta treyst lögreglunni, sérstaklega gagnvart börnum og unglingum. Ég var ekki í neinu rugli, þetta var í fyrsta og síðasta sinn sem ég er grunaður um eitthvað.“

Hvaða áhrif hefur þetta haft á þig?

„Þetta eyðilagði mig. Ég er með áfallastreituröskun. Ég fæ kvíðakast í hvert sinn sem ég sé löggu, eitt sinn var ég nánast búinn að keyra út af þegar ég heyrði í sírenum. Ég mætti lögreglunni áðan, ég upplifði mikinn kvíða og svitnaði.“

„Þetta hafði mikil áhrif á mig sálarlega og félagslega. Sérstaklega sjálfstraustið. Ég er með ADHD og þetta leggst ofan á það, þannig að ég var mjög erfiður í samskiptum þegar ég var yngri. Ég var óþolinmóður og snöggur upp, þegar ég lít til baka þá sé ég að þetta hefur haft mikil áhrif á samskipti mín við fjölskylduna og vini.“

Fundaði með lögreglustjóra

Þorsteinn fundaði í síðustu viku með Sigríði Björk Guðjónsdóttur, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, og lögmanni lögreglunnar. „Þeim fannst þetta ömurlegt. Hún bað mig innilegrar afsökunar fyrir hönd embættisins og benti mér á hluti sem ég gæti gert til að leita réttar míns.“ Þorsteinn Andri og lögmaður hans hafa nú leitað til nefndar um eftirlit með lögreglu og bíða nú niðurstöðu þaðan.

Hvað viltu að lögreglan geri, fyrir utan að greiða þér bætur til að mæta sálfræðikostnaði?

„Ég vil að lögreglumennirnir sem fóru með mig inn í búningsklefann og settu mig í einangrun biðji mig afsökunar. Ég vil að þeir viti hvað þeir gerðu mér og ég vil að allir viti það til að þetta gerist ekki aftur fyrir einhvern annan. Ég vil líka að foreldrar viti hvaða rétt börnin þeirra hafa og að unglingar viti hvaða rétt þau eru með. Ég vildi að ég hefði vitað hvaða rétt ég hafði.“

 

Fær stuðning hjá Rökkva Þorsteinn Andri segir að það sé alltaf hægt að reiða sig á Scheffer-hundinn sinn, Rökkva. Hann veit alltaf þegar honum líður illa. Mynd: DV/Hanna

Fær alltaf stuðning hjá Rökkva

Fyrir utan stuðning frá nánum vinum og fjölskyldu hefur Þorsteinn alltaf getað reitt sig á hundinn sinn, Rökkva. „Hann er ekkert þjálfaður sem stuðningshundur en þegar mér líður illa þá fattar hann það strax og leggur hálsinn í kjöltuna á mér. Hann veit þegar mér líður illa, hann er svo gáfaður. Ég get ekki útskýrt hversu mikið hann hjálpar mér en ég finn rosalega hversu mikinn stuðning ég fæ frá honum.“

Rökkvi hefur einnig hjálpað til við félagslífið. „Nú er ég alltaf að fara út að sinna þessu nýja áhugamáli, það er svo margt í kringum það. Til dæmis hóphittingar, hópgöngur og sporþjálfun. Þetta hjálpar allt mjög mikið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“