fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Mamma veit best: Það besta fyrir þig og móður jörð

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 20. apríl 2018 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mamma veit best er heilsubúð og heildsala með hágæða bætiefni, matvörur og snyrtivörur þar sem áhersla er lögð á hollustu og umhverfisvæna framleiðsluhætti. Mamma veit best er með verslanir að Laufbrekku 30 (Dalbrekkumegin) í Kópavogi og að Njálsgötu 1 í Reykjavík. Auk má finna ítarlegar upplýsingar og vefverslun á síðunni mammaveitbest.is.

Vegan

Í þessari umfjöllun stiklum við á stóru í ríkulegu heilsuvöruúrvali verslunarinnar og nefnum til sögunnar nokkrar vörur. Fyrst er að nefna vegan-línuna hjá Mamma veit best:

Frá Garden of Life fæst stórsniðugt bætiefni fyrir þá sem eru á vegan-mataræði, en það er „raw“ járn með B12, fólati og C-vítamíni. Þeir sem eru á vegan-mataræði þurfa sérstaklega að huga að því að fá nóg af járni og B12-vítamíni. Járn er vissulega að finna víða í jurtaríkinu en B12 getur verið erfiðara að fá úr jurtafæði í nægilegu magni.

Einnig er fáanlegt D3-vítamínsprey frá Garden of Life. Við hér á norðurhveli jarðar líðum mörg skort á D-vítamíni vegna skorts á sólarljósi og það er alvarlegt þar sem D-vítamín er líkamanum nauðsynlegt til fjölda starfa. D-vítamín er meðal annars mikilvægt fyrir beinheilsu, hjarta- og æðakerfi og ónæmiskerfi. Flestar tegundir af vegan D-vítamíni er D2-vítamín, sem nýtist líkamanum ekki jafn vel og D3. D3 er það form sem líkaminn býr til í húðinni þegar á hana skín sól og það er bæði talið öruggara og virkara til inntöku en D2-formið.

Frá Garden of Life kemur líka „raw“ vegan-prótín með vinveittum gerlum, ensímum og vítamínum. Í hverjum skammti er að finna 17 grömm af prótíni og ekki ögn af viðbættum sykri. Prótínið er laust við öll aukaefni og er frábært fyrir þá sem fá ekki nóg prótín úr fæðunni eða vilja bæta prótíni í þeytinginn. Frá Garden of Life fást einnig ýmiss konar fjölvítamín og næringardrykkir.

Dr. Mercola framleiðir gæða prótínduft sem hentar vel í þeytinginn, enda er það bæði bragðgott og seðjandi. Í hverjum skammti er að finna 12 grömm af prótíni og er duftið algerlega sykurlaust og laust við öll aukaefni.

Vegan-lífsstíllinn nær ekki eingöngu yfir mataræði heldur forðast þeir sem eru vegan einnig allar vörur sem eru framleiddar með dýraafurðum eða eru prófaðar á dýrum. Margar sápur eru til dæmis framleiddar úr dýrafeiti og margar snyrtivörur eru prófaðar á dýrum. Hjá Mamma veit best fást frábærar lífrænar, vegan- og „fair-trade“-sápur og húðvörur frá Dr. Bronner’s. Sápurnar má jafnt nota í sturtunni, í þvottavélina sem og í öll heimilisþrif. Þær eru mildar og henta allri fjölskyldunni enda innihalda þær engin kemísk efni.

Slökun magnesíum vinnur gegn streitu

Slökun magnesíum er frábær vara frá Mamma veit best sem vinnur gegn streitu, svefntruflunum, fótaóreið og hægðatregðu. Slökun magnesíum hentar fólki á öllum aldri en skammtastærðir geta verið mismunandi eftir þörfum hvers og eins. Ef um börn ræðir er best að fá ráðleggingar frá fagaðilum en Slökun er ekki ætluð ungabörnum.

Slökun magnesíum er einfalt að nota, duftið er einfaldlega leyst upp í vatni og drukkið. Það fæst í 5 mismunandi bragðtegundum svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Slökun magnesíum er laust við öll aukaefni. Það er sykurlaust og sætt með stevíu.

Magnesíum hefur mörgum mikilvægum hlutverkum að gegna í líkamanum og kemur við sögu í yfir 300 efnahvörfum. Sem dæmi um hin mörgu hlutverk magnesíum má nefna:

  • Nauðsynlegt fyrir eðlilega vöðvavirkni – einkum vöðvaslökun
  • Nauðsynlegt fyrir eðlilega taugavirkni – einkum taugaslökun
  • Ómissandi þáttur orkuvinnslu í hverri einustu frumu líkamans
  • Nauðsynlegt fyrir eðlilega starfsemi hjarta og æðakerfis – leikur t.d. mikilvægt hlutverk í að viðhalda eðlilegum blóðþrýstingi

Mykind-bætiefnalínan

Mykind-bætiefnalínan frá Garden of Life er lífræn, vegan og laus við öll aukaefni. Bara það besta fyrir þig og móður jörð! Mykind-línan var var hönnuð með það að leiðarljósi að velja aðeins bestu mögulegu hráefnin og meðhöndla þau þannig að næringin skilaði sér sem best. Gæði bætiefna skipta öllu máli. Þau sem eru búin til úr fæðu eins og þessi er líklegra að líkaminn nái að nýta að fullu.
Öll línan er 100% vegan og inniheldur því engar dýraafurðir. Meira að segja D3- og B12-vítamínin eru vegan en þessi tvö er oft erfitt að fá vegan í bestu formunum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum