Vinningshafar í Twill leiknum
Steini Glimmer hlaut flest atkvæði í leiknum
Steini Glimmer fékk flest atkvæðin og vann til fyrstu verðlauna, við óskum honum innilega til lukku!
Þá er saumaleik Twill og Fókus lokið.
Það má með sanni segja að viðtökurnar hafi komið mörgum á óvart, en yfir 200 myndir bárust í leikinn og voru mörg þúsund manns sem studdu sína uppáhalds-hönnuði í þessum skemmtilega leik.
Íslendingar eru duglegir við að skapa og var gaman að skoða hversu fjölbreytt hönnunin var á myndunum sem bárust í Twill-leikinn
verðlaunaafhending mun fara fram á fimmtudag í næstu viku ( eftir verslunarmannhelgina ) og eru vinningshafar hvattir til að hafa samband við Twill í síma 551-6500 Einnig er hægt að senda skilaboð á facbook síðu Twill, eða bara koma við hjá stelpunum í Twill að Fákafeni 9.
Fókus verður að sjálfsögðu á staðnum þegar vinningar verða afhendir og munum við sýna myndir frá þeirri stund.
Verðlaunin eru glæsileg:
1.sæti: Saumavél frá Pfaff og 75.000 kr inneign hjá Twill
2.sæti: 40.000 kr inneign hjá Twill
3.sæti: 20.000 kr inneign hjá Twill
4. og 5.sæti: 10.000 kr inneign hjá Twill.
Hérna kemur listinn yfir vinningshafana sem við óskum innilega til hamingju!
1. Sæti – Steini Glimmer – Jakkaföt 1338 atkv
2. Sæti – Jóhanna Bríet – útskriftarkjóll 1186 atkv
3. Sæti – Jórunn Elva – Kjólar eftir mig – 248 atkv
4. Sæti – Anna Sigríður Jónsdóttir – Wonder woman – 194 atkv
5. Sæti – Jana Rut – Samfestingur – 175atkv
Hugmyndir af jóladressinu
Hörkuflott eign með æðislegu útsýni
Hún er svo töff
TRYLLT DISKÓ-ÆÐI