Leðurjakki verður að tösku
Lærðu að búa til sjúklega flott clutch-veski eins og stjörnurnar eiga
Hver vill ekki eignast svona veski?Ljósmynd / Hildur
Það er svo mikið af góðum hugmyndum sem hægt er að framkvæma án mikillar fyrirhafnar. Þessi gamli jakki fékk sko heldur betur nýtt líf, og allt af jakkanum var nýtt og úr því varð þessi líka flotta taska.
Margrét Liv er nemi á 5. önn í kjólasaum/klæðskurði í Tækniskólanum, hún fékk þá frábæru hugmynd að nota gamlan leðurjakka og búa sér til þessa flottu clutch-tösku eins og stjörnurnar eru allar með og það heppnaðist svona líka vel.
Hér að neðan geta allar skvísur lært að búa til sína eigin clutch-tösku. Í þessu tilfelli var leðrið svo mjúkt að hægt var að gera þetta á venjulegri heimilisvél, en það er betra að kaupa séstaka leðurnál.
Aðferð
1. Snið búið til sem er kassi 24x40cm eða jafn stór og þú vilt hafa töskuna
2. Sniðið svo lagt á leðrið við heila brún (gott er að velja fallegan bút úr leðrinu)
3. Klippa svo út eftir sniðinu
4. Leggja saman réttu á móti réttu og sauma saman með 1 cm saumfari á hliðunum
5. Taka rennilásinn sem við sprettum úr jakkanum og sauma við (klippa af lásinum þannig hann passi í töskuna)
6. Ef fóðrið í jakkanum er heilt er hægt að klæða töskuna með fóðrinu en það er ekki nauðsynlegt og var ekki gert í þessu tilfelli
Nú er þessi frábæra skvísu clutch-taska tilbúin og ætti hvaða kona sem er að geta útbúið sér svona skvísuveski fyrir sumarið úr hvaða efni sem er.
Hugmyndir af jóladressinu
Hörkuflott eign með æðislegu útsýni
Hún er svo töff
TRYLLT DISKÓ-ÆÐI