20 kíló fokin á 3 mánuðum!

Annie Marín breytti um lífsstíl

Fókus skrifar
fokus@dv.is

Annie Marín er 23 ára gömul skvísa sem hefur heldur betur tekið miklum breytingum á undanförnum vikum!

Á síðustu 3 mánuðum hefur hún tekið af sér um 20 kíló með því að stunda líkamsrækt af kappi ásamt því að breyta um mataræði, hún æfir pole fitness og stundar Trimform hjá Trimformi Berglindar og hefur það hjálpað henni að tóna líkamann.

Hér má sjá hvarnig máiln hennar voru þann 2. mai þegar hún hóf átakið af fullum krafti hjá Trimformi Berglindar, og hins vegar eins og þau eru í dag, tæpum 3 mánuðum síðar:

Brjóst / 105 cm / 96 cm

Undir brjóst 101 cm / 89 cm

Mitti 91 cm / 76 cm

Upphandleggur 34.5 cm / 31 cm

Mjaðmir 110 cm / 97.5 cm

Rass 114 cm / 102 cm

Læri 67 cm / 62 cm

Hún segir okkur frá reynslu sinni hér í stuttu máli:

Ég var búin að "sukka" í mataræðinu aðeins of vel og varð "mýkri " en ég vildi vera.

Þannig ég ákvað að byrja að vinna í mínum líkama til þess að geta verið sátt við mig og liðið vel í eigin skinni.

Ég byrjaði á því að skoða mataræðið mitt vel og skipta út. Í stað þess að detta í ís í góða veðrinu fór ég frekar að búa til hollan "ís" (létt kókosmjólk og frosnir ávextir mixað í blandara) og fleiri hluti í þeim dúr.

Ég byrjaði að fara í Trimform Berglindar og VÁÁÁ!! hvað það var að gera sig, það virkilega hjálpaði húðinni að jafna sig á þyngdartapinu og cm FUKU!

Ég bætti pole fitness í þá blöndu og þá fóru hlutirnir að gerast, en ég mun pottþétt halda þessu æfingaplani áfram því það er ótrúlegur árangur sem felst í því að blanda saman Pole fitness og Trimformi.

Ég er búin að missa 20 kíló jafnt og þétt á 3 mánuðum.

Ég er hraustari, sterkari og mun sáttari með sjálfa mig.

Auðvitað er ég ekki búin, nú tekur við að móta og fínpússa mig , en ég hlakka til því hægt og rólega er ég að verða eins og ég vil vera.

Stelpurnar í MOMO Laugavegi 42 klæddu Annie Marín í þennan flotta kjól og skó sem hún er í á myndinni hér fyrir neðan.