165 kíló á leið í fegurðarsamkeppni

Hún er fullkomlega sátt við þyngd sína

Fókus skrifar
fokus@dv.is

Kristie er 18 ára gömul stúlka sem hefur átt í baráttu við aukakílóin frá því hún man eftir sér.

Henni var strítt stöðugt á uppvaxtarárum hennar og þurfti hún að hætta í skóla á tímabili vegna eineltis sem hún varð fyrir vegna útlits hennar.

Í dag hefur hún lært að elska sig eins og hún er með aðstoð unnusta síns Alex, en þau hittust á internetinu á netsíðu sem er ætluð mönnum sem hrífast af konum í ofþyngd.

Hann hefur hvatt hana til að taka þátt í fegurðarsamkeppni sem er fyrir konur í verulegri ofþyngd, en talsmaður keppninar, Emma Walker telur gríðarlega mikilvægt að konur sem eru verulega yfir kjörþyngd fái að njóta sín og sýna það og sanna að þyngdin skipti ekki máli þegar kemur að fegurð.

Kate Upton er ekki á sama máli, en hún hefur barist við anorexíu og telur offitu vera stærsta vandamálið þegar kemur að átröskun.

Hún tekur dæmi og segir ef það yrði haldin keppni fyrir konur sem þjást af anorexíu þá yrði tekið öðruvísi á því máli.

Jafnframt telur hún að margir fari í vörn þegar orðið feitur er nefnt, en að nota orð eins og grindhorðuð sé nánast í lagi.

Þrátt fyrir að vera með líkamsþyngdarstuðul 68 (BMI) , þar sem heilbrigt telst vera milli 18.5 og 24.9, segist Kristie vera við fullkomna heilsu en hún segist mæðast töluvert þegar hún gengur upp tröppur.

Þegar öllu er á botninn hvolft, þá skiptir máli að vera við góða heilsu og vera sáttur í eigin skinni.

Unnusti hennar segist elska feitar konur og því þyngri því betra.

Hér má sjá parið.