Stundar kynlíf 7 sinnum á dag til að létta sig

Hefur tapað um 45 kílóum í kjölfarið

Fókus skrifar
fokus@dv.is

Hún hefur misst um 45 kíló við kynlífsiðkun sína

Hún hefur misst um 45 kíló við kynlífsiðkun sínaLJósmynd/Guinness

Hún var um 315 kíló þegar hún byrjaði á að stunda ,,sexercise" eins og hún kýs að kalla þessa iðkun sína.

Hún komst í heimsmetabók Guinness með titilinn þyngsta kona veraldar!

Pauline Potter 47 ára og Alex kynntust á internetinu árið 2002 og giftu sig 3 árum seinna.

Á meðan allt var í blóma í sambandinu náði Pauline að halda sér í um 290 kílóum.

Þegar þau skildu bætti hún á sig um 25 kílóum og gerði það mikið fyrir Alex sem einsetti sér að ná í hana aftur.

Hann segist vera hrifnastur af henni þegar hún er vel mjúk og nýtur þess að stunda kynlíf með henni allt að 7 sinnum á dag.

Pauline telur sig brenna um 500 kaloríum við hver mök og ætlar að halda sig við þessa æfingu til að létta sig enn frekar.

Hún segist ekki vera komin á þann stað að hún geti verið í kynþokkafullum undirfötum, en hún vefur fallegu satínlaki um sig miðja til að heilla mann sinn upp úr skóm og sokkum.

Alex er sjálfur um 69 kíló og segist hann óska þess að konan léttist ekki um of fyrir hans smekk.

Hér má sjá myndir af parinu sem er í fullri æfingu þessa dagana!