Sykur á óhefðbundinn hátt...

Ertu með þurra húð?

iris@dv.is

Sykur er hægt að nota á margan hátt en ekki bara í kaffibollann eða kökuna.

Næst þegar þig vantar líkamsskrúbb, eða þú hefur brennt þig á tungunni eftir of heitt kaffi þá getur sykur verið svarið.

Hér eru nokkrar hugmyndir að því hvernig hægt er að nota sykur á óhefðbundin hátt.

1. Ef þú þarft að fara með litla barnið í sprautu þá getur verið gott að gefa því pínu sykurvatn fyrir sprautuna, en það er það talið virka sársaukadeyfandi, sakar ekki að prufa.

2. Ef þú hefur brennt þig á heitum drykk eða borðað mjög sterkan mat þá er um að gera að setja sykur á tunguna og sjá hvort að sársaukinn lagist ekki.

3. Ef að líkaminn er orðin þurr eftir öll sólböðin þá er snilld að blanda saman einum banana við 3 tsk af hrásykri og 1 tsk af möndluolíu ( ekki blanda of mikið saman ) og nudda síðan á húðina áður en þú ferð í sturtu.

4. Mjúkar varir eru betri og þannig ferðu að: blandaðu saman strásykri við jojoba olíu og ef þú átt piparmintudropa þá er æðislegt að setja einn eða tvo dropa saman við og síðan berð þú þetta á varirnar og nuddar létt í smástund, eftir það ættir þú að vera komin með mjúkar kyssulegar varir.