Besta fyrirpartýið 2012

,,Lounge" stemning á Bestu á fimmtudag

iris@dv.is

Þriðja árið í röð verður Besta Útihátíðin haldin. Í annað skiptið á Gaddstaðaflötum, þann 05. til 08. júlí 2012.

Hátíðin opnar á á fimmtudeginum með ótrúlega seiðandi hústónum þriggja ofur-töffara sem eiga útgáfufyrirtækið Culprit frá Kaliforníu sem hefur undir sínum væng menn á borð við Jamie Jones, Seth Troxler, Manik og Martin Buttrich. Ef þú kannast við þessa, átt þú að mæta á fimmtudeginum og dansa með okkur.

Droog er hústónlistar teymi frá Los Angeles og hafa þeir byggt upp sterkt orðspor í þeim heimi sem framleiðendur og plötusnúðar um allan heim.

Þeir eru einnig höfuðpaurar útgáfufyrtækisinins Culprit LA sem er með útgáfur frá Hot Natured (Lee Foss & Jamie Jones), Matt Tolfrey, MANIK, Jozif, Inxec, Laura Jones, og Shonky svo eitthvað sé nefnt.

Þeir vinna náið með Crosstown Rebels og Leftroom og hafa spilað á einhverjum stæðstu raftónlistar hátíðum heimsins, þar á meðal BPM, Coachella, Winter Music Conference, Sonar, og DEMF.

Það má líka minnast á að þeir hafa ferðast um allan heim, frá Moskvu til Límu, Ibiza til Costa Rica, Berlin og Paris, og nýlega til Brasilíu, Túnis og Portúgal.

Núna eru þessir snillingar að mæta til Íslands og munu opna hátíðina. Með þeim koma fram Mr. Cuellar/Rix og Ghozt.

Það verður því ,,lounge" stemning á svæðinu í upphafi hátíðar.

Nældu þér í miða HÉR