Besta Útihátíðin 2012
Yfir 50 atriði koma fram á hátíðinni
Stuð og stemmning á BestuLjósmynd/Helgi Steinar
Besta Útihátíðin verður haldin, þann 05. til 08. júlí 2012.
Yfir 50 atriði koma fram á hátíðinni.
Þriðja árið í röð verður Besta Útihátíðin haldin. Í annað skiptið á Gaddstaðaflötum. Nú bætist við fimmtudagur sem verður kryddaður með þægilegum tónum plötusnúða. Miðaverð í forsölu í ár er 10.500 og er 18 ára aldurstakmark og aðeins 10.000 miðar í boði. Miðaverð hækkar úr 10.500 í 12.500 þann 2. júlí. Fjöldi tónlistaratriða á Bestu Úthátíðinni í ár er um helmingi fleiri en í fyrra og fjölbreytnin eftir því.
Hægt er að verða sér út um miða HÉR
Þrjár hljómsveitir eru með endurkomu á hátíðinni. Botnleðja, 200.000 Naglbítar og Sóldögg eru hljómsveitir sem allar koma fram á ný. Hátíðin hefur aldrei verið stærri en yfir 50 tónlistaratriði koma fram á hátíðinni. Fjöldi tónlistarmanna og plötusnúða hefur aldrei verið meiri né fjölbreyttari og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Meðal annars koma fram, Gus Gus, Páll Óskar, Ourlives, Blaz Roca, Gabríel og Opee, Skítamórall, Friðrik Dór, Gísli Pálmi, Agent Fresco og Tiny ásamt fjölda annara listamanna.
Fimmtudagur:
Hátíðin opnar á á fimmtudeginum með ótrúlega seiðandi hústónum í anda þeirra tónlistarmanna sem gefa út á útgáfufyrirtæki þriggja ofur-töffara frá Kaliforníu. Þeir sem kannast við Jamie Jones, Seth Troxler, Manik og Martin Buttrich ættu að mæta á fimmtudeginum.
Droog er hústónlistar teymi frá Los Angeles og hafa þeir byggt upp sterkt orðspor í þeim heimi sem framleiðendur og plötusnúðar um allan heim.
Þeir eru einnig höfuðpaurar útgáfufyrtækisinins Culprit LA sem er með útgáfur frá Hot Natured (Lee Foss & Jamie Jones), Matt Tolfrey, MANIK, Jozif, Inxec, Laura Jones, og Shonky svo eitthvað sé nefnt. Þeir vinna náið með Crosstown Rebels og Leftroom og hafa spilað á einhverjum stæðstu raftónlistar hátíðum heimsins, þar á meðal BPM, Coachella, Winter Music Conference, Sonar, og DEMF. Það má líka minnast á að þeir hafa ferðast um allan heim, frá Moskvu til Límu, Ibiza til Costa Rica, Berlin og Paris, og nýlega til Brasilíu, Túnis og Portúgal.
Núna eru þessir snillingar að mæta til Íslands og munu opna hátíðina.
Það verður því 'lounge' stemning á tjaldsvæðinu í upphafi hátíðar.
Föstudagur og laugardagur.
Það má með sanni segja að föstudagurinn og laugardagurinn séu tími endurkomunnar. Sjaldan eða aldrei hafa jafn margar vinsælar íslenskar sveitir snúið til baka á sama tímapunkti eins og á Bestu útihátíðinni í ár. Töffararnir úr 200.000 Naglbítum snúa til baka ásamt sveitaballakóngunum í Sóldögg. Hafnfirska hljómsveitin Botnleðja kemur til baka eftir langt hlé, mörgum til mikillar gleði. Endurkomu Botnleðju hefur verið beðið í áraraðir. Ofangreindar hljómsveitir ætla að flytja öll sín þekktustu lög og eftirvæntingin er mikil.
En þetta er ekki allt: Rappkonungur Íslands, Blaz Roca, ætlar að stíga á svið og gera gjörsamlega allt vitlaust eins og honum einum er lagið. Ein vinsælasta hljómsveit landsins þessa dagana, Blár Opal, mun einnig koma fram og flytja lagið "Stattu Upp," sem var hársbreidd frá því að verða framlag Íslands í Eurovision í ár.
Hin dularfulli Gabríel mun einnig láta sjá sig ásamt Opee en saman hafa þeir átt tvö af vinsælustu lögum landsins það sem af er ári. Hinn umdeildi Gísli Pálmi mun að sjálfsögðu ekki láta sig vanta, ekki heldur Páll Óskar, Ingó og Veðurguðirnir, Sykur, Ourlives, Agent Fresco, Á móti Sól og margir fleiri.
Tryggðu þér miða á Bestu útihátíðina 2012 og vertu viss um að missa ekki af endurkomum ársins í bland við það allra heitasta og vinsælasta í tónlistinni á Íslandi í dag.
Það er engin tilviljun að Besta Útihátíðin heitir það sem hún heitir. Hún ber nafn með rentu.
Bestu Listamennirnir 2012
Hljómsveitir:
1860
200.000 Naglbítar
Á móti sól
Agent Fresco
Blár Ópall
Blaz Roca
Botnleðja
Diamond Thunder
Friðrik Dór
Gabríel & Opee
Gísli Pálmi
Gus Gus
Ingó og Veðurguðirnir
Morning After Youth
Óli 107 & Róbert Freyr ft. Ragga
Ourlives
Páll Óskar
Skítamórall
Sóldögg
Stuðlabandið
Sykur
The Vintage Caravan
Tiny
Úlfur Úlfur
Why Not Jack
Plötusnúðar:
A. Paul (Portúgal)
AJ Caputo
Arnar Ingason
Árni Skeng
ATL
Basic House Effect
Digital Magic (Danmörk)
Droog (Bandaríkin)
Exos
Frigore
Ghozt
Ingi Þór
Invert
Joey D
Johan Stone
Lafontaine
Megaman
Odin Kay
Óli Geir
Pavilion
Plugg'd
Pink & Purple
Ricardo Gomez
Sindri BM
Sound Illusion
Untitled2Music
Viktor Birgiss
Besta Útihátíðin er með Instagram leik í gangi á hátíðinni. Fólk er hvatt til þess að bæta Bestu Útihátíðinni við sem vin á Instagram og fylgja eftir myndum af hátíðinni. Til þess að taka þátt í leiknum þarf aðeins að tagga #Besta12 við þá mynd sem tekin er á hátíðinni. Veitt verða þrenn verðlaun. Vinsælasta myndin, besta myndin og skemmtilegasta myndin. Tónlistarfólk af hátíðinni verður í dómnefnd.
Gott að vita
10.000 miðar í boði
18 ára aldurstakmark
Kaldar vínveitingar seldar á staðnum
Heitur matur til sölu víðsvegar um svæðið
Rafmagn fyrir húsbíla og fellihýsi
Hundar eru bannaðir
Öllum er skylt að ganga snyrtilega um og nota ruslatunnur eða gáma
Algengar spurningar
Er öruggt að fara á Bestu Útihátíðina?
Við leggjum mikið upp úr öruggri og ánægjulegri upplifun gesta okkar. Gæslu á svæðinu er sinnt af Lögreglu, hjálparsveitum og öryggisvörðum. Sjúkragæsla er á svæðinu og ávallt læknir á vakt auk sjúkrabíls. Strangt er tekið á meðferð og vörslu ólöglegra vímuefna. Besta Útihátíðin hefur seinustu tvö ár styrkt NEI hreyfinguna sérstaklega.
Eru alvarleg slys eða nauðganir algengar á Bestu?
Sem betur fer hefur hvorugt komið upp s.l. þrjú ár og markmiðið er að gæta þess að svo verði áfram.
Er ódýrara að sleppa úr degi?
Aðgangur er keyptur að svæðinu einu sinni og gildir einu hvort fyrirhugað sé að vera allann tímann eða bara einn dag.
Er hægt að kaupa mat og drykk á svæðinu?
Heitur matur og kaldir drykkir eru til sölu á svæðinu allann tímann. Hamborgarabúllan sér um veitingar.
Helgi Steinar tók ljósmyndirnar sem fylgja þessari grein og má fleiri verk hans HÉR
Í samstarfi við..
Tuborg - FM957 - Pepsi Max - Skapandi
FIMM ÁRUM YNGRI Á FIMM MÍNÚTUM!
Kavíar- snyrtimeðferð?
Fyrirsætur á efri árum
700 milljóna slot