Erna Dís gerði grín í Hemma Gunn í útvarpsþættinum Magasín
Líður pínu kjánalega þegar hún gerir grín í fólki
Erna Dís er einn umsjónarmanna morgunþáttarins Magasín á FM 957 hún segir okkur hvernig tilfinning það er að hrekkja fólk og hvernig hún ætlar að verja sumrinu.
Hvað ætlar þú að gera skemmtilegt í sumar?
Ég mun vera hress í útvarpinu í sumar, tek svo tvær vikur í frí í lok júlí. Fer í brúðkaup hjá yndislegum vinahjónum mínum. Gæti verið að ég láti reyna á það að sofa í tjaldi, hef hingað til verið með andlegt ofnæmi fyrir útlegum. Ætla svo bara að njóta þess áfram að vera til, lífið er svo frábært!
Hvernig kom það til að þú fórst að vinna í morgunþættinum Magasín ?
Ég frétti að það vantaði afleysingarmanneskju í þáttinn og ég var að leita mér að vinnu, við Þórhallur vorum vinir fyrir þannig að þetta small allt saman mjög fljótt. Núna losna strákarnir ekkert við mig
Hvernig líður þér þegar þú hrekkir fólk ?
Mér líður oft pínu kjánalega á meðan á því stendur, gerði hrekk í Hemma Gunn um daginn og fannst það frekar erfitt þar sem við erum góðir vinir en hann fyrirgaf mér þessi elska. Það tekur mig oft smá tíma að koma mér í gang þegar við erum að gera hrekki. Við erum auðvitað ekki að gera hrekki til þess að gera lítið úr fólki eða til þess að vera vond, þetta er bara allt til gamans gert.
Hvernig bregst þú við þegar það er gert grín í þér?
TRYLLIST....!! Nei nei, er orðin nokkuð vön núna. Við erum að gera grín í hvort öðru daglega, aldrei í illkvittni samt. Það þýðir lítið annað en að vera með harðan skráp þegar maður vinnur eingöngu með karlmönnum.
Hvar keyptir þú þér flík síðast og hvernig flík?
Ég keypti mér tvo sæta sumarkjóla í Gina Tricoti þegar ég var í Köben um daginn.
Hvernig hugsar þú um líkama og sál?
Ég reyni að fara í hot kraftyoga þrisvar í viku, finnst það alveg rosalega gott bæði fyrir líkamann og sálina. Mér líður alltaf miklu betur þegar ég fer í ræktina og fæ smá útrás.
Ertu stjórnsöm?
Uuuuu já! Ég er mjög stjórnsöm, það getur bæði verið kostur og galli. Þórhallur og Brynjar Már fá reglulega að finna fyrir því en þeir kunna á mig núna og láta mig ekki komast upp með neitt rugl.
Hvernig er draumagæinn?
Skemmtilegur, sjálfsöruggur, góðhjartaður, vinalegur, blíður, umhyggjusamur, fyndinn, hávaxinn, myndarlegur, herðabreiður, sjálfsöruggur og laus við hroka. Er svo heppin að eiga svona frábæran draumagæja sem kærasta, hann hefur alla þessa kosti og fleiri til.
Uppskrift að fullkomnu kvöldið hjá þér?
Ef ég er með fjölskyldunni minni, vinum og / eða kallinum mínum þá er kvöldið fullkomið. Ég er spilasjúk og finnst því mjög gaman að vera með stórum hóp og spila skemmtilegt spil.
SKILNAÐIR ÁRSINS 2012
VINSÆLAST 2012
SVONA KLÆÐUM VIÐ OKKUR EKKI STELPUR!
KYNÞOKKAFYLLSTA KONA HEIMS