Gómsætt með kaffinu
Kaffikaka með kanil bragðast vel!
Æðislegt að byrja daginn með kaffiköku og kaffi. Ef þetta vekur þig ekki þá veit ég ekki hvað!
Þetta þarftu:
2/3 bolla strásykur
1/2 bolla matarolíu
2 egg
2 góðar msk instant kaffi leyst upp í pínu vatni
1 tsk vanilluduft
2 tsk kanil
1og 1/2 bolla hveiti
1 tsk bökunarsóda
1/4 tsk salt
1 bolla hreint jógúrt
1/2 bolla rúsínur
Svona ferðu að:
Settu strásykurinn, olíu, eggin, kanil og vanilluna í hrærivél og hrærðu þangað til allt er létt.
Bættu hveitinu, bökunarsóda og saltinu saman við og hrærðu í pínu stund og bættu jógúrtinu og rúsínum saman við og settu síðan blönduna í smurt kökuform og bakaðu við 180°í sirka 30 mínútur.
Það er mjög gott að blanda saman púðursykri ( ca 1/2 bolli) og valhnetum ( ca 1/2 bolli) ásamt smá kanil og strá yfir kökuna um leið og hún kemur úr ofninum.
Einn espresso með volgri kökunni og málið er klárt!
Verði þér að góðu!
Gómsætt rauðkál
Berjabomba!
Æðisleg jólaglögg
Sjúklega góðar trufflu-franskar